Sign up to save your podcasts
Or

Í tilefni þess að árið 2020 er nú að renna sitt skeið var ákveðið að taka upp einn aukaþátt af Á Kaffistofunni. Þar fékk Hjörvar, þáttarstjórnandinn síkáti, þá Arnar Bjarka Sigurðarson og Gísla Guðjónsson með sér í lið til þess að ræða margt af því sem fram fór á árinu.
Meðal þess efnis sem rætt var eru kynbótasýningar, sem fá töluvert mikið vægi í þættinum þar sem þær breytingar sem voru gerðar í ár á kynbótakerfinu eru ræddar, landssýningin hvernig landsmótum framtíðar verður háttað og fleira. Við ræðum ýmislegt er tengist íþrótta-,gæðinga- og skeiðkeppni. Þá er slegið á létta strengi og átti hver og einn að velja sitt draumalið sem skipað er 8 keppendum til að keppa fyrir Íslandshönd á HM.
Í fyrsta skipti er tæknin notuð og hringdi hlustandi inn og sagði sína skoðun á ýmsu er tengist hestamennskunni.
Þetta og ýmislegt fleira er að finna í nýjasta þætti af Á Kaffistofunni.
By EiðfaxiÍ tilefni þess að árið 2020 er nú að renna sitt skeið var ákveðið að taka upp einn aukaþátt af Á Kaffistofunni. Þar fékk Hjörvar, þáttarstjórnandinn síkáti, þá Arnar Bjarka Sigurðarson og Gísla Guðjónsson með sér í lið til þess að ræða margt af því sem fram fór á árinu.