Sigga Dögg sexologist

Sigga Dögg sexologist

By Sigga DoggSociety & Culture
Download on the App Store

Sigga Dögg sexologist episodes

  • ÉG ER KOMIN AFTUR!
    Muniði þegar ég keyrði um landið og blaðraði stjórnlaust um allskonar?
    Ég veit þú trúir því kannski ekki...en fólk er búið að vera biðja um MEIRA SVOLEIÐIS!
    Og þar sem kynfræðslan er að fara svona hressilega af stað og ég er að fara rúnta um landið (enn eina ferðina) þá ætla ég að bjóða þér að vera með mér.
    Ef þú ert nýr hlustandi þá já - hljóðgæðin eru ekki góð. Það er bara þannig. Stefni ekki á að laga það.
    Og ég fann ekki upphafs og endalagið mitt en ég mun leita að því, lofa.
    Og ég fer um sjúklega víðan völl - við erum að tala um allskonar alltaf.
    Njóttu :)
    31 min
  • 65. Fantasíur beibí!
    Ég hef verið að pæla lengi í fantasíum (ÞVÍ ÞÆR ERU SVO MIKILVÆGAR!)
    og ætla af því tilefni að hendast í að halda kvöldstund um það fyrirbæri!
    Hverjar eru algengustu fantasíurnar og hvað þýða þær?
    Má fantasera um hvað sem er og hvern sem er, hvernig sem er?
    Hvað segir fantasían manns um mann?
    Hvernig býr maður til fantasíu?
    Hvernig aðgreinir maður á milli fantasíu og raunveruleika?
    Hvernig skapar maður öruggt rými í sambandinu sínu til að ræða fantasíuna sína?
    Viðburðurinn fer fram
    fimmtudaginn 24.september
    kl.19:30 - 22.30
    í lokuðu rými í versluninni Losta /vinnurými Siggu Daggar kynfræðings í Borgartúni 3.
    ATH - Takmarkaður fjöldi þátttakanda.
    Verð fyrir einstakling: 3900 kr
    Verð fyrir par: 6900 kr
    Nánari upplýsingar:
    instagram.com/sigga_dogg_sexologist/
    facebook.com/siggadogg.is
    18 min
  • 63. Sigga sín á emo ástartrúnó
    Hljóðgæðin eru ekki frábær...en ég LOFA að pælingarnar eru það... eða kannski ekki! Úff, datt á smá trúnó og allskonar pælingar um ást og ástarsorg en svo kom svo hressileg vindhviða að ég hætti í miðri hugsun og fór að hlusta á tónlist og syngja og dansa með!
    En hér er ég, meðfram Sæbraut, að syrgja ástina og hoppa á steinum.
    25 min
  • 62. Kynveran og foreldrahlutverkið!
    💞 Við Andrea sem er með Líf kviknar, og nú bráðum Líf dafnar, settumst niður, sprittuðum hendurnar, fengum okkur rauðvín og opnuðum línuna fyrir spurningar um kynlíf og móðurhlutverkið og af nógu var að taka! 💞
    Þetta er hljóðupptakan af beinni útsendingu á Instagram 19.apríl 2020 💘
    1 hr 1 min
  • 61. Q&A frá IG-LIVE
    Spurt & Svarað með Siggusinni!
    Hvað töluðum við EKKI um?
    Kynlíf á túr, að koma út sem bi í gagnkynhneigðu sambandi, líkamsímynd, slit, þröngar píkur, grindarbotninn, samskipti, undirgefni, ástarsorg, sambönd, ástina, kynlíf, sjálfsfróun, fullnægingar og svo meira kynlíf - minnir mig...!
    57 min
  • 60. Píkupartí heldur áfram!
    Seinni hluti píkupartísins sem fer aðeins meira inn á sjálfsfróun og fullnægingar og skvört og g-blettinn og vörurnar sem geta leyst allskyns píkukvillaleiðindi - meira hér
    https://florealis.is/vorur/
    30 min
  • 59. PÍKUPARTÍ !
    Ég var með beina útsendingu á INSTAGRAM um píkuna a til ö!
    Það var talað um píkuna, bara píkuna og EKKERT annað því það má! og þarf!
    Við auðvitað byrjuðum á að skilgreina hvað einkennir góða píkuheilsu - bráðnauðsynlega upplýsingar að hafa, ættum eiginlega að gera segul til að setja á ísskápinn!
    En hvað töluðum við ekki um...?!
    Bólur, útferð, lykt, bleyta, skvört, gbletturinn, snípurinn, leghálsinn, unaður, fullnægingar, barmar, lýtaaðgerðir, nærbrækur og sjálfsfróun...og margt margt fleira því spurningalistinn var næstum endalaus!
    Anna Lind læknir heiðraði okkur með nærveru sinni og fróðleik um allt PÍKUTENGT - ég meina, vissirðu að maður þarf að pissa rétt? Og að læra inn á útferðina sína? Og það má nota píkusápu í andlitið?! Ég lærði svo ótal margt og ég vona að þið hafi gert það líka!
    Ég náði meira að segja ekki að fara yfir allt sem ég þurfti að segja og því bætti ég við part 2 - hann er þáttur no.60!
    Takk fyrir að hlusta og vera með!
    Þessi þáttur var í samstarfi við Florealis - bestu píkuvörurnar fyrir allskyns píkukvilla! Sjá meira hér https://florealis.is/vorur/
    1 hr

About Sigga Dögg sexologist

From the publisher's feed

Kynfræðsla fyrir fullorðna!