Það er kannski fullmikið sagt að Anna á Stóru-Borg hafi verið ástkona hans enda nokkur hundruð ár sem skilja þau að. Huglæg hjákona segir hann sjálfur. Sigurður Hróarsson framkvæmdastjóri Sögusetursins á Hvolsvelli heillaðist af Önnu Vigfúsdóttur þegar hann flutti í nágrenni Eyjafjallanna enda var hún heillandi persóna sem sagði feðraveldi 16. aldar stríð á hendur þegar hún varð ástfangin af smalanum Hjalta Magnússyni. Umsjón: Margrét Blöndal.