Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.... more
FAQs about Sjókastið:How many episodes does Sjókastið have?The podcast currently has 28 episodes available.
November 13, 2025#18 Þór Sigfússon - Guðfaðir SjávarklasansÞór Sigfússon hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku viðskiptalífi allt frá því að stýra Verzlunarráði og Sjóvá yfir í að stofna og leiða Íslenska sjávarklasann.Í þessum þætti ræðum við líf hans og leiðir, hugmyndina um „100% nýtingu“ sjávarauðlinda og hvernig samstarf, tengslanet og nýsköpun geta umbreytt heilli atvinnugrein.Við förum líka inn í manneskjuna sjálfa. Hvað drífur hann áfram og hvaða lærdóma hann hefur dregið frá árunum í viðskiptum og frumkvöðlastarfi.Hefur klasinn í raun skilað þeim árangri sem stefnt var að? Og hvað þarf að breytast til að sjávarútvegurinn verði fyrirmynd hringrásarhagkerfis framtíðarinnar?...more52minPlay
October 21, 2025#17 Jón Frímann Eiríksson - skipstjórinn kornungiÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Frímann Eiríksson, skipstjóra sem hóf feril sinn ungur og hefur alla tíð lifað og andað fyrir sjómennsku. Jón Frímann segir frá fyrstu árum sínum á sjó, ábyrgðinni sem fylgir því að stýra skipi og þeirri sýn sem hann hefur mótað á lífið og tilveruna úti á hafi.Þeir ræða einnig um hvernig breyttir umhverfisþættir hafa áhrif á lífríki sjávar — og hvernig gervigreind og ný tækni gæti í framtíðinni orðið nytsamleg við fiskleit og ákvarðanir til hafs....more1h 25minPlay
October 07, 2025#16 Vilhjálmur Birgisson - Baráttumaður af SkaganumÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness.Vilhjálmur hefur lengi verið einn skýrasti og beinskeyttasti talsmaður launafólks á Íslandi — maður sem hikar ekki við að segja hlutina eins og þeir eru.Í þættinum fer Aríel með Vilhjálmi yfir lífshlaup hans, baráttu fyrir réttlæti á vinnumarkaði og hvernig uppeldi og reynsla úr sjávarplássi mótaði sýn hans á samfélagið.Þeir ræða stöðu sjómanna, kjarasamninga, launajafnrétti, verðbólgu og ábyrgð stjórnvalda — og spyrja hvort stéttabarátta dagsins í dag sé sú sama og áður.Beinskeyttur, persónulegur og á köflum hvass þáttur sem lætur engan ósnortinn.Hlustaðu á Sjókastið á Spotify og YouTube ...more1h 26minPlay
September 30, 2025#15 Pétur Jakob Pétursson - svissneski vasahnífur sjávarútvegsinsÍ þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Pétur Jakob Pétursson, fyrrum sjómann og margfróðan sjávarútvegsfræðing sem ólst upp í Grímsey og á að baki langa reynslu á sjó og í sjávarútvegi. Við förum yfir æskuárin á eyjunni, störf hans hjá Samherja og hvernig hann sér íslenskan sjávarútveg í samanburði við erlendan. Einnig ræðum við sóknarfæri í veiðum, vinnslu og tækni, viðkvæm mál eins og auðlindagjöld og samskipti við viðskiptaþjóðir – og ekki síst, hvort hann sakni þess að vera sjálfur úti á sjó....more1h 3minPlay
September 23, 2025#14 Guðrún Hafsteinsdóttir - Formaður SjálfstæðisflokksinsGuðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sest niður í Sjókastinu. Við ræðum persónulega hlið hennar sem sjómannsfrú, fjölskylduna, reynsluna úr atvinnulífinu og starfið í ráðherrastól. En við förum líka í stóru pólitísku málin: klofinn flokk, landamærin, veiðigjöldin, brennivín í búðir og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt tiltrú almennings.Opinskátt og persónulegt spjall sem veitir innsýn í konuna sem leiðir XD – og framtíð stærsta flokks Íslands....more1h 53minPlay
September 16, 2025#13 Guðmundur Helgi Þórarinsson - formaður VMÍ þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með Guðmundi Helga Þórarinssyni, einum af röddum sjómanna á Íslandi undanfarna áratugi. Við ræðum æskuár hans og fyrstu skref á sjó, baráttuna í kjaramálum, gagnsæi í verðlagningu, auðlindarentumál og lífeyrisréttindi sjómanna.Guðmundur Helgi fer líka yfir helstu áfanga í félagsmálum, áskoranir sem sjómenn hafa staðið frammi fyrir, og framtíð íslensks sjávarútvegs – með beinskeyttum skoðunum og umbúðalausu samtali.Þetta er viðtal sem enginn sem hefur áhuga á sjómennsku, sjávarútvegi eða stéttabaráttu má láta fram hjá sér fara....more1h 52minPlay
September 02, 2025#12 Valdimar Víðisson - sjómaður sem varð bæjarstjóriÍ þessum þætti af Sjókastinu hittum við Valdimar Víðisson, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Hann segir frá uppvexti sínum á Vestfjörðum, árum sínum á sjó og hvernig leiðin lá þaðan í kennslu, skólastjórn og pólitík. Við ræðum áherslur hans í bæjarstjórn, sýn hans á framtíð Hafnarfjarðar og gagnrýna umræðu um íslenska menntakerfið.Kynntu þér manninn á bak við titilinn – sjómaðurinn, skólastjórinn og bæjarstjórinn....more1h 15minPlay
June 24, 2025#11 Kjartan Páll - strandveiðibaráttumaður og háskóladoktorÍ þessum þætti hittum við Kjartan Pál Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, og föru yfir það hvað strandveiðar eru í raun: lífsviðurværi, táknræn barátta fyrir réttlátari dreifingu auðlindarinnar – eða kerfi óhagkvæm leið til að afla þjóðarbúinu tekna.Við kynnumst Kjartani sem er doktor í félagsfræði, flakkaði heimshorna á milli og lenti í fangelsi í Egyptalandi. Við skyggnumst í hugmyndafræðina á bak við strandveiðihreyfinguna, gagnrýni á kvótakerfið og spyrjum hvort þjóðin vilji mátulega hagkvæma aðferð við að veiða fisk – í nafni sjálfsímyndar og réttlætis....more1h 18minPlay
June 17, 2025#10 Markús Alexandersson - níræður skipstjóri í fullu fjöriMarkús Alexandersson hóf sjómannsferil sinn í Noregi aðeins 18 ára gamall og sigldi meðal annars á olíuskipum milli Asíu og Miðausturlanda á tímum Kóreustríðsins. Í þessum þætti segir hann frá ævintýrum sínum á úthöfunum, lífinu um borð og kraftmikilli ævi á sjó og landi. ...more56minPlay
June 10, 2025#9 Georg Lárusson - forstjóri LandhelgisgæslunnarÍ þessum þætti ræðum við við Georg Kr. Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Við kynnumst Georgi á persónulegu nótunum, ræðum við hann um hvort fókus Gæslunnar eigi að vera á leit og björgun eða þá varnarmál. Við heyrum um fjaðrafok í kringum hugmyndir um sölu á flugvél Gæslunnar, olíukaup skipanna í Færeyjum, samspil ríkis og varnarstefnu, gagnrýni á utanríkisstefnu Íslands og framtíð landsins sem herlaus þjóð. Við köfum í pólitíska ábyrgð, fjármögnun og öryggishugsun í breyttum heimi.Þátturinn opnar einnig á umræðu um hvort öryggismál séu í ólestri og hvort við séum að missa tökin á eigin landamærum....more1h 18minPlay
FAQs about Sjókastið:How many episodes does Sjókastið have?The podcast currently has 28 episodes available.