Skattaspjallið

Skattaspjallið

By Samtök skattgreiðendaBusinessNon-Profit
Download on the App Store

Skattaspjallið episodes

  • #25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?

    Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins (opnirreikningar.is). Komið hefur í ljós að þrátt fyrir fögur fyrirheit er hinu opinbera ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti – alltaf þarf að fela eitthvað fyrir skattgreiðendum. Í Skattaspjalli við þá Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason, sérfræðinga Samtaka skattgreiðenda, er farið yfir þessa sögu.

    Samtök skattgreiðenda fá mikinn fjölda ábendinga um hvernig megi fara betur með opinbert fé og einnig berast upplýsingar um umdeilanlega gjörninga. Þannig var upplýst að ein og sama manneskjan hefur fengið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála þrjú ár í röð um leið og viðkomandi hafi tilkynnt um framboð sitt í komandi borgarstjórnarkosningum. Það undarlega er að þessi verkefni lúta að því að auka kosningaþátttöku innflytjenda sem setur frambjóðandann í óheppilega stöðu.

    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

    21 min
  • #24 - Hagræðing og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis

    Hver heldur hagsmunum skattgreiðenda á lofti í sölum Alþingis þegar flestir flokkar styðja aukna útþenslu ríkisins og skattahækkanir? Fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna en ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðarinnar fá sinn reikning því skuldir aukast. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir settist inn á þing fyrir Miðflokkinn að loknum síðustu kosningum og hefur gert sig að eindregnum talsmanni hagræðingar og sparnaðar í ríkisrekstri. Í Skattaspjallinu í dag ræðir Nanna Margrét hvernig það er að berjast við allt að því sjálfvirka útgjaldaþörf ríkisins og hvernig það er að orða hagræðingu og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis.

    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

    26 min
  • #23 - Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?

    Samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og verður í raun stöðugt flóknara. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun sem varð til þess að sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, þeir Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hafa tekið saman mikið yfirlit um það hvort að Íslendingar hafi yfirhöfuð efni á að vera á vinnumarkaði? Niðurstaða þeirra er að það skorti fullkomlega á yfirsýn og að endurskoða þurfi bótakerfin frá grunni, án aðkomu stofnana og sérfræðingastétta sem staðið hafa fyrir hönnun núverandi kerfis. Þá kemur í ljós að kjör öryrkja eru mjög ólík eftir kyni og fjölskyldugerð. Öll umræða um kjör öryrkja sem ekki tekur tillit til fjölskyldubóta missir því marks.
    Sláandi niðurstöður úr kerfinu sýna að til að ná sömu ráðstöfunartekjum eftir húsnæðiskostnað og einstæð þriggja barna móðir á örorku þarf þriggja barna einstæð móðir á vinnumarkaði að hafa um 1,4 milljónir á mánuði í heildartekjur. Gríðarlegur fjárhagslegur hvati er því fyrir foreldra barna að komast á örorku en þó sérstaklega fyrir einstæðar mæður.


    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

    32 min
  • #22 - Peningar skattgreiðenda út í loftið

    Tekjur af sköttum tengdum loftslagsmálum aukast jafnt og þétt, bæði hér á landi og í Evrópusambandinu. Í haust fékk þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason svar við fyrirspurn þar sem hann spurði um þá fjármuni sem veitt er til loftslagsmála árlega. Svarið sem Karl Gauti fékk var á margan hátt ófullnægjandi en þó eru ýmsar tölur þar sláandi. Upplýst var að á tímabilinu 2017 til 2024 hefðu runnið 144 milljarðar króna til loftslagsmála eða rúmlega 20 milljarðar á ári. Um leið var sagt að áætlanir gerðu ráð fyrir að á næstu fimm árum verði enn gefið í og upphæðin verði rúmlega 113 milljarðar. En í hvað fara peningarnir? Um það er heldur fátt um svör. Karl Gauti kemur í Skattaspjallið og ræðir flæði lofts og peninga.


    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

    23 min
  • #21 - Hættumerki í velferðarkerfinu

    Miklar breytingar hafa orðið á velferðarkerfinu á undanförnum áratug en nú er svo komið að fjórða hver kona á vinnualdri þiggur örorkubætur. Róbert Bragason, sérfræðingur hjá Samtökum skattgreiðenda, kemur í Skattaspjallið til að rýna í tölur úr velferðarkerfinu og við ræðum hvernig breytingar á samfélaginu birtast í gegnum útgjöld þar.
    Nýjar upplýsingar sýna að hlutfall Íslendinga af báðum kynjum á vinnualdri sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri hækkar úr 13% árið 2012 í 18% árið 2025. Þar munar um mest að hlutfall kvenna á vinnualdri, sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri, fer úr 17% í 23% á sama tímabili og hlutfall karla úr 10% í 13%.
    Þá hefur fjöldi einstaklinga með erlendan bakgrunn sem fá endurhæfingar- eða örorkulífeyri sexfaldast frá árinu 2012 en sé litið til kvenna eingöngu hefur fjöldinn sextánfaldast á sama tíma. Þessar tölur vekja athygli en ekki síður sú staðreynd að framkvæmdavaldið veitir ekki upplýsingar um barnalífeyrisgreiðslur í nýlegu svari til þingmanns. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

    25 min
  • #20 - Áramótaglaðningur til skattgreiðenda

    Stjórnendur í atvinnulífinu fá gjarnan glaðning frá skattayfirvöldum um áramót þegar skattar og gjöld hækka og nýr veruleiki blasir við. Hermann Guðmundsson, forstjóri og stofnandi verslunarfyrirtækisins Kemi, er einn harðasti talsmaður einkaframtaksins hér á landi. Hann er gestur Skattaspjallsins í dag og ræðir aukna skattheimtu, vaxandi ríkisumsvif og þverrandi mátt í atvinnulífinu. Hermann telur að það séu miklar áskoranir framundan fyrir viðskiptalífið og kallar eftir því að ríkisstjórnin sýni að henni sé alvara þegar kemur að hagræðingu og sparnaði í ríkisrekstri. Hermann segir það áhyggjuefni hve umsvif hins opinbera aukist nánast sjálfkrafa og að ekki sé hugað nægilega að öðrum lausnum þegar kemur að verkefnum ríkisins, svo sem einkarekstri.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠[email protected]

    29 min
  • #19 - Guðspjall skattgreiðenda

    Skattgreiðendur fengu sannarlega kartöflu í skóinn þegar fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna og ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðarinnar fá sinn reikning því skuldir aukast um 82 milljarða á næsta ári. Því má spyrja hvort barátta Samtaka skattgreiðenda sé til einhvers? Til að ræða það kemur Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, í Skattapjallið nú þegar jólin eru að koma. Skafti segist oft vera spurður að því hvort baráttan fyrir lækkun skatta og minni ríkisumsvifum sé ekki harla tilgangslítil. Hann bendir á að hugsanlega væri ástandið enn verra ef ekki væri fyrir baráttu þeirra sem þó reyna að andæfa sjálfvirkri aukningu ríkisútgjalda. Í spjalli við Sigurð Má Jónsson fer Skafti yfir það sem hefur gerst hjá Samtökum skattgreiðenda sem hafa eflst mjög undanfarið. Um leið bendir hann á að mikil vinna sé framundan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Það er því mikilvægt að hlusta á jólaguðspjall skattgreiðenda.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠[email protected]

    38 min
  • #18 - Hitinn hækkar hjá skattgreiðendum

    Grænir skattar hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og skattheimta undir merkjum loftslagsmála hvílir þungt á einstaklingum og atvinnulífinu. Um leið rísa stofnanir og félagasamtök verða til sem taka við þessum fjármunum, oft undir heldur óljósum formerkjum. Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur hefur gefið út bókina Hitamál sem hefur vakið mikla athygli. Hann er gestur Skattspjallsins í dag og fer yfir þá skattheimtu sem fer fram undir merkjum loftslagsmála og hvernig óviss vísindi eru látin styðja við aukna skattheimtu. Loftslagshópur Samtaka skattgreiðenda heldur því áfram að spyrja gagnrýnna spurninga. Þegar spurt er um kostnað vegna loftslagsaðgerða koma almenn og ógreinileg svör en verkefnisstjórn loftslagsaðgerða á að skila framvinduskýrslu árlega en hefur sleppt því árin 2023 og 2024. Síðasta skýrsla verkefnisstjórnarinnar kom út árið 2022. Frosti fer yfir þetta allt saman í þættinum.


    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠[email protected]

    32 min
  • #17 - Loftslagsskattar út í bláinn og börn án blóðbanda


    Hvað kosta loftslagsskattar og -gjöld skattgreiðendur landsins? Það er eins og enginn viti það almennilega og þegar fyrirspurnum er beint að ríkinu verður fátt um svör. Til að ræða þetta koma þeir Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson, sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, í settið. Ætlunin er að setja á stofn loftslagshóp Samtaka skattgreiðenda og því beina þeir til þeirra hlustenda sem hafa áhuga á eða þekkingu á loftslagsmálum að vera í hópi á vegum samtakanna um loftslagsmál sem stefnt er á að hittist reglulega. Þegar spurt er um kostnað vegna loftslagsaðgerða koma almenn og ógreinileg svör en verkefnisstjórn loftslagsaðgerða á að skila framvinduskýrslu árlega en hefur sleppt því árin 2023 og 2024. Síðasta skýrsla verkefnisstjórnarinnar kom út árið 2022. 

    Komið hefur í ljós að á annan tug barna sem komið hafa til landsins á grundvelli fjölskyldusameiningar eru eða hafi verið í forsjá yfirvalda eftir að í ljós kom að börnin hafi engin blóðtengsl við þá einstaklinga sem þau eru hér að sameinast. Ótrúlegt mál en Samtök skattgreiðenda eru með útistandandi fyrirspurnir og gagnabeiðnir frá því í sumar vegna þessara útgjalda sem Barna og fjölskyldustofa hefur ekki svarað enn þrátt fyrir ítrekanir.


    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠[email protected]

    25 min
  • #16 - Stærð ríkisins og þjáning skattgreiðandans

    Hver eru mörk ríkisútgjalda og hvað eiga einstaklingar að fá að halda eftir af sjálfsaflafé sínu. Þegar einhver andhæfir gegn útgjöldum hins opinbera er sá hinn sami gjarnan spurður hvort hann vilji ekki mennta börnin, lækna sjúka eða sinna öldruðum. Því er þá gjarnan bætt við að menn eigi ekki að láta peningana taka völdin þegar aðrir eru að reyna að byggja upp manneskjulegt samfélag. Oftast er það þó þannig að þeir sem mest tala um mennsku og manneskjulegt samfélag eru þeir sem vilja stunda mesta tilfærslu fjármuna í samfélaginu og þá auðvitað hafa sjálfa sig í miðju þessu millifærslukerfi. Þegar við ræðum stærð og umfang hins opinbera erum við oft að ræða heimspekilegar spurningar og fáir eru betri til að svara því en  Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðum á Íslandi um langt árabil. Hannes er kunnur að eindregnum stuðningi við frjálshyggju og hefur manna mest lagt sig eftir því að ræða hlutverk ríkisvaldsins og stærð þess. Hannes er gestur Skattaspjallsins í dag.


    Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠styrkja samtökin hérna⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠[email protected]

    30 min

About Skattaspjallið

From the publisher's feed

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli…