Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli (Hullow og Xandra) horfa á Buffy the Vampire Slayer og Angel og hljóðrita þátt um hvern einasta þátt.... more
FAQs about SLAYGÐU:How many episodes does SLAYGÐU have?The podcast currently has 380 episodes available.
July 27, 2021013 Olnbogarými (Office Space)Metnaðarlaus ungur maður vinnur á skrifstofu með erfiðum yfirmanni og þykir fátt til lífs síns koma, þangað til að hann tekur þátt í dáleiðslutíma sem fer örlítið úrskeiðis. En þrátt fyrir mislukkaða dáleiðsluna nær hann að öðlast nýtt viðhorf gagnvart yfirmönnum sínum, vinnu og einkalífi....more1h 13minPlay
July 20, 2021012 Hörundsár (Scarface)Ungur flóttamaður frá Kúbu kemur sér í mjúkinn hjá eiturlyfjainnflytjanda í Miami. Þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu er hann þó ekki lengi að taka yfir stórveldið hans og eftir það liggur beinast við að stækka við sig. En eins og oft er með fyrirtæki sem opna mörg útibú er auðvelt að missa tökin......more1h 41minPlay
July 13, 2021011 Tóti á móti (My Neighbour Totoro)Lítil fjölskylda flytur yfir sumartímann í sveitir Japans, til að dreifa huganum á meðan að móðirin liggur á spítala. Dæturnar tvær kynnast nágrönnum, dýrum og alls kyns furðuverum sem dvelja þar líka....more1h 4minPlay
July 06, 2021010 Bíbí fríkar út (The Birds)Gáskafull og hvatvís kona hittir heillandi mann í smáfuglabúð í stórborginni, en þegar hann þarf skyndilega að rjúka ákveður hún að elta hann uppi með þá tvo fugla sem hann óskaði systur sinni í afmælisgjöf. Þegar hún mætir óvænt í bæinn til verður uppi fótur og fit þegar aðrir fuglar byrja að sýna af sér......more1h 29minPlay
June 29, 2021009 Reimholt (Ghost World)Tvær ungar og nýútskrifaðar stelpur fylgjast með fólki í kringum sig og reyna að finna sinn stað í lífinu. Önnur þeirra kynnist hljómplötuáhugamanni meðan að hin vinnur og leitar að íbúð fyrir þær tvær að leigja saman. Þetta er mynd um mótunarár unglingsstúlkna og sumarið sem breytir öllu....more1h 18minPlay
June 22, 2021008 Hugguleg án heimanmunds (Pretty Woman)Ung og glæsileg kona aðstoðar aðkomumann í Rauða hverfi Los Angeles við að komast aftur heim á hótelið hans. Maðurinn óskar eftir að hún veiti honum sína nærveru- og kynlífsþjónustu meðan hann er í viðskiptaerindum í borginni og gera þau ýmsa hluti saman, meðal annars að versla, horfa á kappreiðar og elskast....more1h 29minPlay
June 15, 2021007 KJAMS (Jaws)Ógnvekjandi ófreskja í hafinu skekur heilt sjávarþorp sem hefur sitt lifibrauð af ferðafólki sem sækir þangað í sólina kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna. Lögreglustjórinn á svæðinu vill krefja bæjaryfirvöld að loka ströndinni á meðan að hann og félagar hans ráða niðurlögum á gríðarstórum hákarli sem hefur kjamsað á nokkrum bæjarbúum og aðkomufólki....more1h 18minPlay
June 08, 2021006 Meðal dóna og þrjóta í Minnesóta (Fargo)Eldklár lögreglukona í miðríkjum Bandaríkjanna fær morðgátu upp í hendurnar þegar hún kemur að undarlegu bílslysi í vegarkanti. Rannsókn málsins leiðir hana til bílasala sem virðist við fyrstu sýn ekki hafa allt mjöl hreint í sínu pokahorni. Skemmtileg ræma um morðmál og ótrúlegar afleiðingar....more1h 21minPlay
June 01, 2021005 Upp, upp, mín sál (Up)Eftir fráfall æskuástar og eiginkonu hans Carl Fredricksen ákveður hann að halda í draumaferðina þeirra upp að Paradísarfossum. Hann vissi þó ekki að þegar að hann tók á loft í heimasmíðuðum loftbelg að óvæntir ferðafélagar leyndust með, sem koma til með að kenna honum eitt og annað um að njóta lífsins....more1hPlay
May 25, 2021004 Jarmsaga (Silence of the Lambs)Vel þekkta og ógeðþekka mannætan Hannibal aðstoðar lögreglukonuna Clarice við leit að fjöldamorðingja í sýslum Vestur-Virginíu. Þrátt fyrir ógnandi tilburði gagnvart öllu öðru fólki kemur Hannibal vel fram við hana og hjálpar henni í hvívetna. Hulli og Sandra ræða samúð með siðblindum fjöldamorðingjum sem hlusta á óperur og drekka fín vín....more1h 11minPlay
FAQs about SLAYGÐU:How many episodes does SLAYGÐU have?The podcast currently has 380 episodes available.