slowstudio

slowstudio

By slowstudio podcastEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

slowstudio episodes

  • 14. Þangað til næst

    Kæru hlustendur, við ætlum að taka okkur smá pásu vegna breyttra aðstæðna og segjum ykkur betur frá því í þættinum. Í þættinum förum við þó einnig yfir nokkrar af okkar uppáhalds leiðum til að hægja á, jarðtengja okkur og vera í núinu. Ekki veitir af yfir annasama sumarmánuði!

    Takk kærlega fyrir samfylgdina hingað til, við vonum að ykkur líki þátturinn vel. Þangað til næst…

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.


    39 min
  • 13. Júlía Sif - Veganismi

    Í þessum þætti fengum við til okkar Júlíu Sif, ein af Veganistu systrum og meðeigandi Plöntunar (kaffihús í miðbæ Reykjavíkur). Í þættinum ræðum við meðal annars um veganisma og sýn Júlíu á því málefni, Veganistu ævintýrið, vegan í tískuheiminunum, kaffihúsareksturinn og margt fleira. Við áttum einstaklega áhugavert og skemmtilegt spjall við Júlíu og vonum að ykkur þyki það líka.


    Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Plantan kaffihús og Alba heildsala.

    1 hr 11 min
  • 12. Talía Fönn - Sjálfbært mataræði

    Í þessum þætti fengum við til okkar hana Talíu Fönn til að ræða við okkur um mataræði og sjálfbærni. Talía hefur lokið BS gráðu í næringarfræði við Háskóla Íslands og hefur óbilandi áhuga á næringu og hvernig hún viðkemur bæði heilsu og daglegu lífi okkar. Við ræðum þær næringarráðleggingar sem taldar eru sjálfbærar til framtíðar fyrir bæði manneskjuna og jörðina, matarsóun og framleiðsluhætti og matarvenjur Íslendinga. Þátturinn er vægast sagt áhugaverður og jafnvel “sjokkerandi” á köflum. Við mælum heilshugar með!

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.

    1 hr 9 min
  • 11. Hallgerður Freyja - Ræðum aðeins meira um samfélagsmiðla

    Í þessum þætti fengum við hana Hallgerði Freyju, verðandi tómstundafræðing og systur Halldóru, í spjall um samfélagsmiðla og áhrif þeirra á andlega líðan. Þátturinn er eins konar framhald af síðasta þætti en við ræðum meðal annars þau áhrif sem “like” geta haft á sjálfsmynd og sjálfsöryggi, FOMO (Fear of missing out) á samfélagsmiðlum og margt fleira. Við áttum stórskemmtilegt spjall við Hallgerði og vonum að þið hafið einnig gaman af.

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.

    55 min
  • 10. Ræðum um samfélagsmiðla

    Í þessum þætti köfum við aðeins ofan í samfélagsmiðla á léttum nótum. Við ræðum til að mynda þau víðtæku áhrif sem samfélagsmiðlar geta haft á neyslu, duldar markaðssetningar, viðhorf okkar til tísku, viðhorf okkar til heilsu og almennar venjur. Við áttum ótrúlega huggulegt spjall og vonum að þið hafið einnig gaman af.

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.

    52 min
  • 9. Rvk Ritual - Gerum lífið aðeins meira djúsí

    Í þessum þætti fengum við til okkar þær Evu Dögg og Dagnýju Berglindi, stofnendur og eigendur Rvk Ritual. Rvk Ritual er vettvangur sem einblínir á allt sem viðkemur heildrænni vellíðan - hugleiðslu, yoga, sköpun, hreyfingu, öndun, næringu og alls kyns önnur tól og tæki sem hvetja þig til þess að tengjast þér betur. Við áttum yndislegt spjall við þessar stórkostlegu konur um Rvk Ritual og vegferðina að stofnun þess, self-mastery námskeiðið sem breytti lífinu okkar og hugmyndafræði Evu og Dagnýjar á bak við fyrirtækjarekstur. 


    1 hr 42 min
  • 8. Spjara fataleiga - Fataskápur nútímans?

    Í þessum þætti fengum við til okkar þær Kristínu Eddu Óskarsdóttir og Sigríði Guðjónsdóttir, stofnendur og eigendur SPJARA fataleigu. Við ræðum um reksturinn og upphafið að SPJARA, neytendahegðun, markaðssetningu og hvað fataleiga er einfaldlega mikil snilld. Við lærðum ótrúlega margt af þessum flottu konum og það var ótrúlega skemmtilegt að fá að skyggnast inn í þeirra hugarheim þegar kemur að tísku.

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.

    1 hr 19 min
  • 7. Apríl Harpa - Ræðum aðeins um bleyjur

    Í þessum þætti fengum við til okkar lífsgúrúinn Apríl Hörpu sem er m.a. eigandi Cocobutts, taubleyjuverslun og fræðslusetur. Við ræðum um allt á milli himins og jarðar en þá allra helst áhrifin sem einnota bleyjan hefur á umhverfið, heilsuna og fjárhaginn, en talið er að einnota bleyjan sé ein stærsta mengungarógnin sem við stöndum frammi fyrir í dag. Við viljum þakka elsku Apríl æðislega fyrir komuna og hlökkum til að fylgjast með öllum hennar töfrum í framtíðinni. 

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús


    1 hr 12 min
  • 6. Fast fashion - Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi

    Eftir tvo kannski smá yfirþyrmandi síðustu þætti um áhrif fast fashion á bæði umhverfið og manneskjuna þá erum við búnar að vera mjög spenntar fyrir þessum þætti. Hér fjöllum við um það sem við sem einstaklingar getum gert til að stuðla að jákvæðri neysluhyggju - það er nefnilega svo ótrúlega mikið sem við getum gert sem krefst jafnvel ekki mikillar fyrirhafnar en hefur mikil áhrif í stóra samhenginu.

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.

    1 hr 7 min
  • 5. Fast fashion - Ómannúðlegur iðnaður

    Þáttur númer þrjú í “fast fashion seríunni” okkar en í þessum þætti förum við yfir hvernig aðstæðum starfsfólks í verksmiðjum skynditískugeirans er háttað og afhverju. Fast fashion fyrirtæki framleiða fötin sín í svokölluðum “sweatshops” og það orð eitt og sér gefur okkur ágæta hugmynd um hvernig aðstæður þar inni eru og hver áhrifin eru á starfsfólk þess.

    Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.

    1 hr 4 min

About slowstudio

From the publisher's feed

Halldóra og Sesselía ræða um allt sem tengist tísku og sjálfbærum lífsstíl ásamt því að fá til sín sérfræðinga í einlægt spjall um slík málefni. Stelpurnar eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á…