Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Smá pláss er feminíski áttaviti RÚV núll. Allt um óþægileg stefnumót, svikaraheilkennið og plássið sem má taka eða gefa eftir í almannarými. Smá pláss er á hverju miðvikudagskvöldi á RÚV núll streymin... more
FAQs about Smá pláss:How many episodes does Smá pláss have?The podcast currently has 80 episodes available.
October 10, 2018NauðgunarmenningSunna og Elín verða varar við nauðgunarmenningu daglega. Hún er stórt vandamál á Íslandi sem og annarsstaðar. Nauðgunarmenning kristallast í því þegar konum er ekki trúað þegar þær segja frá, þegar þolendum er kennt um ofbeldið sem þau verða fyrir og þegar gert er lítið úr alvarleika kynferðisofbeldis. Þær ræða um Dr Christine Blasey Ford og Brett Kavanaugh, birtingarmyndir nauðgunarmenningar í poppkúltúr, ósnertanleika forréttindafólks og leiðirnar sem við getum farið til þess að sporna við ástandinu. “RAPE CULTURE, VICTIM BLAMING, AND THE FACTS“ http://www.southernct.edu/sexual-misconduct/facts.html “Alicia Carroll | Calling out rape culture on TV | TEDxBeaconStreet“ https://www.youtube.com/watch?v=WPMiLVZK6Z8&t=899s “Skýr áhrif kláms í nauðgun ar mál um“ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/04/19/skyr_ahrif_klams_a_naudganir/...more0minPlay

October 03, 2018Fötlun og femínismiSunna og Elín njóta ýmissa forréttinda. Þeirra femínismi á ekki við alla, t.d. eru fatlaðar konur með önnur forgangsatriði og sjónarhorn í sinni baráttu. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er gestur þáttarins að þessu sinni en hún hefur lagt ómælda vinnu í að fræða almenning um fötlunarfordóma og ableisma. Hún ræðir við Sunnu og Elínu um lífið í hjólastól, birtingarmyndir fatlaðra sem vinalaus grey í bíómyndum, aðstoð án samþykkis, áætlaðan hetjuskap fatlaðra og óaðgengilegan femínisma. Inga Björk á Twitter: @ingabbjarna...more0minPlay

September 26, 2018TvískinnungarSunna og Elín fá allt önnur viðbrögð frá samfélaginu en karlar fyrir sömu hegðun. Tvískinnungar (e. double standards) leynast víða. Karlar mega eldast, konur eiga að halda sér í formi tvítugrar konu út ævina og lita á sér hárið þegar það gránar. Lauslátir karlmenn eru folar, konur sem haga sér eins eru druslur. Konur sem skipta um bleyjur á börnunum sínum eru að gera það sem er búist við af þeim, karlar sem gera það sama eru ótrúlega góðir pabbar. Þessi tvískipting samfélagsins og afleiðingar hennar eru skaðlegar fyrir bæði kyn. Sunna og Elín ræða það að borga fyrir sinn eigin mat á deiti, raunfrelsi geirvartna og hræsnina sem fylgir tvískinnungum. Cars Against Harrassment á Twitter - sjá #ShirtlessShamers https://twitter.com/CardsAgstHrsmt Philip Wollen : Animals Should Be Off The Menu debate https://www.youtube.com/watch?v=uQCe4qEexjc...more0minPlay

September 19, 2018Femínismi í framhaldsskólumSunna og Elín byrjuðu í menntaskóla fyrir 10 árum. Á þeim tíma var drusluskömmun daglegt brauð og að skilgreina sig sem femínista var félagslegt sjálfsmorð. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og kvenréttindabarátta fengið meira pláss í meginstreyminu. Beyoncé skilgreinir sig opinberlega sem femínista og fólk í framhaldsskólum í dag er mun opnara fyrir málstaðnum. En er feminísmi orðinn jafn vinsæll og raun ber vitni eða er mögulegt að fólk sé að skilgreina sig sem femínista en haga sér á andféminískan hátt? Gestur Sunnu og Elínar er Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður Emblu, femínistafélagsins í MH. Þær ræða um fréttapésa, sleikmyndbönd, útbreiðslu femínisma um framhaldsskóla landsins og milvægi þess að hafa val til að skilgreina sig sjálfur....more0minPlay

September 12, 2018KynlífSunna og Elín hafa virkilega gaman af kynlífi eins og svo margir aðrir. Þær hafa lært margt á upp á eigin spýtur enda var kynfræðslan sem þær fengu á uppvaxtarárunum ekki upp á marga fiska. Aukin fræðsla um samþykki og líkamsstarfssemi kvenna hefði t.d. komið sér sérstaklega vel! Indíana Rós Ægisdóttir, mastersnemi í kynfræði, spjallar við þær um mýtuna um meyjarhaftið, typpamiðaðar kynlífsstellingar, réttu sleipiefnin, G-blettinn og vanrækslu snípsins....more0minPlay