Rás 2 varð 40 ára á föstudaginn síðasta eins og allir hlustendur eflaust vita og eitt af því sem var gert á afmælisdaginn var að bjóða Sniglabandinu í heimsókn. Þeir mættu og spiluðu í beinni útsendingu. Hér heyrum við það aftur snyrt og stytt.
Sniglabandið er:
Björgvin Ploder sem syngur og leikur á trommur
Einar Rúnarsson sem leikur á orgel og syngur
Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson sem leikur á bassa
Pálmi Jósef Sigurhjartarson sem leikur á píanó og syngur
Skúli Gautason sem syngur og leikur á kassagítar og ásláttarhljóðfæri
Þorgils Björgvinsson sem leikur á rafgítar og syngur
Að Sniglabandinu loknu rifjum við upp heimsókn hljómsveitarinnar Sixties ásamt Jóhanni G. Jóhannssyni í Poppland í std. 12 - 29. september 2006.