Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Baraflokkurinn - David Bowie - Kaleo - Todmobile og gestir
    Í Konsert kvöldsins förum við á Eurosonic Festival í Hollandi og heyrum í Kaleo og hvernig þeir hljómuðu þar árið 2015, en það ár spiluðu 19 atriði frá Íslandi.
    Við förum líka á Glastonbury Festival árið 2000 og heyrum nokkur lög með David Bowie.
    Við endum á að heyra nokkrar upptökur með Todmobile og vinur þeirra eins og Tony Hadley (Spandau Ballet), Midge Ure (Ultravox) og Jon Anderson (Yes).
    En við byrjum á Baraflokknum á Eyrarrokki í fyrra og á Gauknum árið 2000.
    2 hr
  • Pétur Ben á Reykjavík Folk Festival og Ann Wilson
    Í Konsert vikunnar byrjum við á að heyra tónleika Péturs Ben á Reykjavík folk festival í Iðnó í sumar - en hátíðin var endurvakin með góðum árangri í sumar. Pétur spilaði sín eigin lög í bland við lög eftir Prince og fleiri.
    Í seinni hlutanum hlustum við á Ann Wilson úr hljómsveitinin Heart þar sem hún flytur sín eigin lög en líka lög úr smiðju Heart og lög eftir David Bowie og Led Zeppelin td.
    2 hr
  • Led Zeppelin og BB King á tónleikum
    Á fimmtudögum eru KONSERT-kvöld á Rás 2. Í Konsert bjóðum við upp á tónleikaupptökur héðan og þaðan og frá ýmsum tímum.
    Í Konsert kvöldsins heyrum við upptöku frá þýska ríkisútvarpinu í Bremen frá árinu 1968 með BB. King - í tilefni af því að 16. september voru 100 ár frá fæðingu meistarans sem hafði áhrif á fjölda annara gítarleikara sem á eftir honum komu - t.d. Eric Clapton, Keith Richards, Peter Green, Jimi Hendrix og Jimmy Page.
    Við heyrum líka í Led Zeppelin á tónleikum í Englandi - upptökur frá 1975 og 1979.
    1 hr 58 min
  • Karlsvaka 2025 og Radiohead 2003-2209
    Í Konsert vikunnar heyurm við brot af því besta frá Karlsvöku sem haldin var í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn síðasta sunnudag á 75 ára afmælisdegi Karl. J. Sighvatssonar sem var fyrsti og fremsti Hammond-orgelleikari landsins.
    Kalli spilaði með Flowers, Trúbrot og Þurslaflokknum er fór síðar til orgelnáms í Vín og Salzburg í Austurríki, nam tónsmíðar í Boston og var organisti við kirkjur í Neskaupsstað, Bolungarvík og um tíma við fimm kirkjur í Ölfusi. Hann kom líka að tónlistarkennslu og kórastarfi en hann stýrði meðal annars Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsóknar og Söngfélagi Þorlákshafnar.
    Á Karlsvöku voru leikin lög sem tengjast Kalla og þau flutt af frábærri hljómsveit og söngkonum af svæðinu: Tómas Jónsson - orgel, Guðni Finnsson - bassi, Valbjörn Lilliendahl - gítar. Söngur: Lay Low, Kristjana Stefánsdóttir og Emilía Hugrún.
    Kynnir var Jakob Frímann Magnússon.
    Í seinni hluta þáttarins förum við svo á tónleika með Radiohead - heyrum upptökur frá tímabilinu frá 2003-2009 og öll lögin eru af plötunni Hail to the Thief sem kom út 2003.
    2 hr
  • Peter Gabriel á Womad 1982 og Lola Young á Way Out West 2025
    Í þessum þætti förum við á tónleika eins og alltaf- þetta er fyrsti Konsert þáttur haustsins.
    Við byrjum á að bjóða ykkur í ferðalag aftur til ársins 1982 á fyrstu WOMAD-tónlistarhátíðina sem haldin var í Somerset á Englandi. Þar var aðal maðurinn Peter Gabriel, tiltölulega nýhættur í hljómsveitinni Genesis og á barmi þess að festa sig í sessi sem einn áhrifamesti tónlistarmaður síns tíma.
    Eftir það förum við til Gautaborgar á Way Out West tónlistarhátíðina 2025 og hlustum á Lolu Young.
    1 hr 58 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…