Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Ragnheiður Gröndal 30 ára í Norðurljósum í desember 2014
    Ragnheiður Gröndal er í aðalhlutverki í Konsert vikunnar.
    Hún hefur lengi verið ein ástsælasta söngkona, eða tónlistarkona okkar Íslendinga núna í meira en 20 ár. Þegar hún var þrítug fyrir áratug hélt hún upp á afmælið sitt með tónleikum í Norðurljósum í Hörpu og við ætlum að útvarpa þeim í Konsert í kvöld.
    Hún gerði óformlega könnun á Facbook og spurði vina sína og aðdáendur hvað þeir vildu heyra og byggði prógrammið upp á því sem fólkið sagði og á efnisskránni voru bæði jóla-lög og heilsárs.
    Með Ragnheiði á tónleikunum voru:
    Guðmundur Pétursson - gítarar
    Pálmi Gunnarsson - bassi
    Kristinn Snær Agnarsson - trommusett
    Claudio Spieler - slagverk
    Rakel Pálsdóttir, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Ásta Björg Björgvinsdóttir - Raddir
    Arnar Ingi Richardsson, Gísli Páll Karlsson og Jóhann Arnar Þorkelsson - Raddir
    Haukur Gröndal - Klarínett og saxófónn
    Óskar Guðjónsson, Ólafur Jónsson og Sigurður Flosason - Saxófónar
    1 hr 54 min
  • KK & Maggi Eiríks í Stúdíó 12 2003 og Mannakorn á Bræðslunni 2013
    Þakkarorða íslenskrar tónlistar verður afhent í fyrsta skipti á sunnudaginn (1. desember) á degi íslenskrar tónlistar og fyrsti orðuhafinn er Magnús Eiríksson.
    Þessi verðlaun eru heiðursverðlaun nýstofnaðs Tónlistarráðs og er þeim ætlað að heiðra starf og sköpun þess listamanns er fyrir valinu verður og um leið bjóða landsmönnum upp á einstaka tónlistarveislu í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn þar sem nokkur af bestu lögum Magnúsar verða flutt af mörgum af fremstu flytjendum landsins. Þeirra á meðal eru Bríet, Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjáns, Mugison, KK og Valdimar Guðmundsson, auk einvala liðs hljóðfæraleikara undir stjórn tónlistarstjórans Eyþórs Gunnarssonar. Kynnar verða Jón Jónsson og Salka Sól.
    Allir miðarnir tónleikanna voru boðsmiðar og þeir ruku út á nokkrum mínútum þegar opnað var fyrir "miðasöluna" síðasta mánudag.
    Í Konsert vikunnar tökum við ofan fyrir Magnúsi og hann skemmtir okkur sjálfur. Við hlustum á Mannakorn á Bræðslunni 2013 og í Magga Eiríks og KK í Stúdíó 12 árið 2003.
    1 hr 53 min
  • Skip Marley á Rototom 2024 og Hjálmar á Akranesi 2019
    Í Konsert vikunnar heyrum við í Skip Marley á Rototom Sunsplash Reggae festival í Benicassim á Spáni í sumar, og svo Hjálmum í Bíóhöllinni á Akranesi í júní 2019.
    Skip Marley er barnabarn Bob´s Marley, - sonur Cedellu Marley sem er dóttir Bob´s og Ritu Marley. Skip er að gera það nokkuð gott, hann er t.d. með rúma milljón mánaðarlega hlustendur á Spotify og hefur tvisvar verið tilnefndur til Grammy verðlauna.
    Mamma hans Skip er fædd 1967 og er næstelsta barn Ritu og Bob´s, hann er sjálfur fæddur 1996 og alinn upp á Miami. Hann var ekki gamall þegar hann fór að fikta við að spila á hljóðfæri eins og píanó, trommur, bassa og gítar, og svo að semja lög. 19 ára gaf hann út sitt fyrsta lag (2015) og var í kjölfarið boðið að koma með frændum sínum Damian og Stephen Marley í tónleikaferðinni "Catch a fire" sem farin var til minningar um Bob Marley. 2017 gerði hann útgáfusamning við Island records – sem gaf út plötur afa hans á sínum tíma.
    Sumarið 2019 fóru Hjálmar í tónleikaferð um ísland og komu til dæmis við á Akranesi, í Bíóhöllinni. Þeir kölluðu ferðina; Aftur á Bak í tilefni af því að það kom út plata með lögum sem flest höfðu komið út eitt og eitt í einu á undanförnum árum. Þeir spiluðu á 15 stöðum, byrjuðu 31. Maí og 29. Júní komu þeir við á Akranesi. Við heyrum brot af þeim tónleikum í Konsert vikunnar.
    1 hr 56 min
  • U2 1993 - Úlfur Úlfur IA 2024 - The Cure 1986
    Í Konsert í kvöld ætlum við að fara á þrjá staði – förum aftur til ársins 1986 og á Glastonbury hátíðina Það árið og heyrum upptökur með hljómsveitinni The Cure, en Cure er á toppnum á breska vinsældalistanum þessa vikuna með nýju plötuna sína; Songs of a lost World sem er fyrsta platan þeirra í 16 ár og besta platan þeirra í meira en 20 ár segja sumir.
    Iceland Airwaves fór fram um síðustu helgi – 25 ára afmæli. Við heyrum í Úlfur Úlfur á Airwaves frá síðasta föstudegi en þeir spiluðu fyrir troðfullu og áhugasömu Kolaportinu.
    En við byrjum á U2 eins og U2 þótti kannski best og mest töff – fyrir 30 árum á Zoo TV tónleikatúrnum.
    1 hr 55 min
  • Mugsion og Múkkarnir, Ólöf Arnalds og Daði Freyr á Iceland Airwaves.
    Í Konsert í kvöld ætlum við að vera á Airwaves eins og svo oft áður, en það er jú hlutverk og markið þessa þáttar að útvarpa tónleikaupptökum úr safni Rásar 2 – til dæmis frá Iceland Airwaves. Nú er Airwaves einmitt á næsta leiti og 25 ára afmæli.
    Við ætlum hlusta á Mugison á Airwaves 2016 og Ólöfu Arnalds líka, hvort tveggja úr Fríkirkjunni í Reykjavík. Og svo förum við á Airwaves í fyrra í Listasafnið og hlustum á Daða Frey.
    1 hr 57 min
  • Gullin Iceland Airwaves tóndæmi frá liðnum árum
    Airwaves hefst fimmtudaginn 7. nóvember og stendur í þrjá daga til 9. nóvember. Dagskráin er flott, heilmikið af flottri músík bæði héðan frá Íslandi og frá mörgum öðrum löndum.
    Í Konsert vikunnar ætlum við að rifja upp nokkur góð og mögnuð tóndæmi frá liðnum hátíðum úr stóru upptökusafni Rásar 2, en Airwaves er 25 ára í ár. Við heyrum tóndæmi með fólki og sveitum eins og Suede, Dead Sea Apple, Benna Hemm Hemm, The Zutons, Mínus, Heacy Trash, Dr. Spock, Vampire Weekend, Eivor, Hafdísi Huld, Láru Rúnars, Mammút, Ensími, John Grant, Sinéad O´Connor, Ásgeir, Hjaltalín ofl.
    1 hr 58 min
  • Axel Flóvent, Blondshell og Markéta Irglova á Airwaves 2023
    En í Konsert viunnar ætlum við að hlusta á þernna tónleika frá Airwaves í fyrra.
    Við byrjum á henni Markétu Irglovu sem spilaði ásamt flottri strengkasveit í Gamla bíó. Svo hlustum við á Axel Flóvent í Listasafninu og endum svo á hinni Bandarísku Blondshell í Listasafninu líka.
    1 hr 54 min
  • Iceland Airwaves 2014
    Í konsert vikunnar rifjum við upp Iceland Aiwaves 2014 - hátíð númer 15. Tilefnið er auðvitað að senn líður að Airwaves 2024 sem haldin er í 25. sinn.
    Hátíðin fer fram 7-9 nóvember í Listasafninu , IA Center (Kolaportinu), á Gauknum, í Iðnó, á NASA og í Fríkirkjunni.
    Listafólkið og hljómsveitirnar sem koma við sögu í Konsert vikunnar eru; Grísalappalísa & Megas, Vök, Anna Calvi, The Flaming Lips, Future Islands, Júníus Meyvant, King Gizzard & The Lizard Wizard, FM Belfast, Mugison - og svo heyrum við líka í Pétri Ben á Airwaves 2006.
    1 hr 57 min
  • Kris Kristofferson í Stokkhólmi 2016 og Árný Margrét á Airwaves 2023
    Í kvöld förum við á tónleika með Kris Kristofferson í Gothenburg Concert Hall árið 2016 og svo á Iceland Airwaves í fyrra og heyrum í Árnýju Margréti.
    Kris Kristoffersson lést á heimili sínu á sunnudaginn – 88 ára að aldri. Hann var lagasmiður, söngvari, leikari og allt mögulegt, litríkur karakter sem átti að baki langan og gæfuríkan feril.
    Hann spilaði þrisvar á Íslandi. Fyrst kom hann 1992 og spilaði á Hótel Íslandi. Næst kom hann og spilaði fyrir fullri Laugardalshöll 14. júní 2004 og kom svo aftur og spilaði í Hörpu 2016 – nokkrum dögum eftir að hann spilaði í tónleikahöllinni í Gautanborg – tónleikana sem við ætlum að hlusta á í Konsert í kvöld, en þessir tónleikaferð var hans síðasta.
    1 hr 58 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…