Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • Bruce Springsteen í Manchester í maí
    Bruce Springsteen er á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir með The E-street band. Hann byrjaði túrinn í Manchester 14. maí og hélt þrenna tónleika í Co-op Live höllinni í Manchester sem tekur rúmlega 20.000 manns í sæti. Þeir tónleikar vöktu athygli um allan heim vegna þess að hann var aðeins að punda á forsetann sinn – og forsetinn svaraði fyrir sig. Forsetinn sagði á Truth Social að þessi útbruni hæfileikalausi svokallaði rokkari – "dumd as a rock" - ætti bara að loka á sér munninum – og taka svo afleiðingum orða sinna þegar hann kæmi heim – sjáum til hvað gerist þá sagði hann.
    Við bjóðum í kvöld upp á tónleika sem fóru fram 17. maí.
    1 hr 59 min
  • Moses Hightower í Háskólabíó 2017 og Dire Straits í San Antonio 1985
    Í Konsert vikunnar ætlum við að hlusta á tvær flottar hljómsveitir: Heyrum tónleika með Dire Straits í San Antonio í Texas sem fóru fram árið 1985 þegar Dire Straits var að fylgja eftir metsöluplötunni Brothers in arms og var ein vinsælasta og stærsta hljómsveit heims. Og svo heyrum við brot frá útgáfutónleikum Moses Hightower í Háskólabíó í september 2017.
    2 hr 2 min
  • Nýdönsk á Bræðslunni 2016 og Jónas Sig og Milda Hjartað á Bræðslunni 2019
    Dagskrá Bræðslunnar á Borgarfirði Eystra í sumar var opinberuð núna í vikunni og miðasalan fór líka í gang og hún fór heldur betur í gang af krafti – enda dagskráin stórglæsileg. Þetta er 20 ára afmælisveisla, Á föstudeginum verða t.d. sérstakir tónleikar með Emiliönu Torrini sem er eiginleg upphafskona Bræðslunnar - hún var aðalnúmerið á fyrstu hátíðinni 2005 og spilaði líka 2006.
    En núna í Konsert í kvöld ætlum við að rifja upp Bræðslur fyrri tíma og heyrum í Ný Dönsk (2016) og Jónasi Sig og Milda Hjartanu (2019).
    1 hr 58 min
  • Egill Ólafsson 60 ára í Fríkirkjunni 9. febrúar 2013
    Það sem við bjóðum uppá í Konsert kvöldsins eru útgáfutónleikar Egils Ólafssonar sem fóru fram í Fríkirkjunni í Reykjavík daginn sem hann varð sextugur þann 9. Febrúar árið 2013 og tilefnið er skemmtilegt.
    Í fyrsta lagi var hann að gefa þessa tónleika út á vinyl í fyrsta sinn núna á dögunum í takmörkuðu upplagi. Og svo í gær tóku þau hjónin Egill og Tinna Gunlaugsdóttir á móti heiðursverðlaunum Íslensku sjónvarps og kvikmyndaakademíunnar, ÍKSA, við hátíðlega athöfn á Hiltonhótelinu í Reykjavík.
    Egill er einn merkasti og afkastamesti tónlistarmaður íslenskrar dægurtónlistarsögu sendi frá sér frábæra plötu haustið 2012, plötuna Vetur, .og það var verið að fagna útgáfu hennar þarna í Fríkirkjunni á afmælisdegi söngvarans og tónskáldsins Egils og leikarans – 9. febrúar 2013.
    Þetta var laugardagskvöld og kirkjan var troðfull af fólki .sem beið í eftirvæntingu eftir að fá að heyra hvað Egill ætlaði að syngja með hljómsveitinni – Finnsk íslenska vetrarbandalaginu, og eins hvað hann ætlaði að segja - en Egill er mikill og skemmtilegur sögumaður eins og alþjóð veit.
    2 hr
  • Ylja, Egill Ólafsson og GDRN & Magnús Jóhann á þægilegum nótum
    Konsert vikunnar er á þægilegum og næs nótum.
    Við byrjum á að heyra í Ylju á Reykjavík Folk festival á Kex-hostel 2013 í tilefni af því að hátíðin er endurvakin núna í byrjun maí.
    Þá heyrum við í Agli Ólafs og Finnsk-Íslenska Vetrardandalaginu í std. 12 árið 2013 – þegar Egill var að senda frá sér plötuna Vetur, en útgáfutónleikar þeirrar plötu voru að koma út á vinyl.
    Að endingu förum við á HEIMA í Hafnarfirði í fyrra og heyra í GDRN og Magnúsi Jóhanni sem spiluðu í Fríkirkjunni.
    1 hr 58 min
  • Supersport, SúEllen, Tony Allen og The Strokes
    Í Konsert í kvöld byrjum við á að heyra ú Supersport á Eurosonic festival í janúar – Supersport spilaði á rokkklúbbnum Vera sem Nirvana, Joy Divison, U2, Mínus og Sólstafir hafa spilað líka. Þá förum við á Bræðsluna 2014 og hlustum á SúEllen sem er að spila á Græna Hattinum á laugardaginn – fyrstu tónleikana í 6 ár. Þá förum við á Hróarskeldu og hlustum á afróbít með Tony Allen og hljómsveit, og endum svo í Stokkhólmi sumarið 2001 með The Strokes sem voru þá sjóðheitir.
    1 hr 56 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…