Konsert

Konsert

By RÚVMusic
Download on the App Store

Konsert episodes

  • BBC Prom - Allir dansa diskó!
    BBC – Breska ríkisútvarpið hefur áratugum saman staðið fyrir sumartónleikaröðinni Proms- eða Promenade Concerts í Royal Albert Hall. Til að byrja með og þar til fyrir nokkrum árum voru þetta fyrst og fremst klassískir tónleikar en í dag er blandað saman við allskyns annari tónlist - poppi - rokki - jazz - soul og diskói.
    Og það er akkúrat diskó sem við ætlum að hlusta á í Konsert í kvöld. Við heyrum músík sem við höfum heyrt oft áður, lög sem fólk eins og Chic, Trammps, Bee Gees, Gloria Gaynor, Diana Ross, Boney M og fleiri gerðu vinsæl á sínum tíma – stórsmellir diskósins!
    Góða skemmtun -og Það má hafa hátt og dansa!
    1 hr 59 min
  • Richard Hawley í Brussel
    Í Konsert í kvöld förum við til Brussel í Belgíu -en samt til Sheffield.
    Sá sem ætlar að spila fyrir okkur og syngja er frá Sheffield á Englandi og þegar hann spilar – amk núna í þessum túr, er hann með stórt skilti á sviðinu sem á stendur: Welcome to Sheffield!
    Hann heitir Richard Hawley og er fæddur í Sheffield árið 1967 og var á Brit-Pop tímanum (90’s) í hljómsveit sem hét The Longpigs og átti talsverðum vinsældum að fagna víða um Evrópu en þó aðallega heima á Bretlandseyjum. Eftir að Longpigs lagði upp laupana gekk Hawley til liðs við Jarvis Cocker vin sinn í hljómsveitinni Pulp og spilaði með þeim í nokkur ár.
    Hann túraði með ýmsum öðrum líka sem gítarleikari (Nancy Sinatra, Lisa Marie Presley, All Saints ofl) og stjórnaði upptökum á plötum með mörgum.
    En svo byrjaði hann að gefa út sólóplötur og sló í gegn með sínum einstaka stíl og fallegu rödd. Hann hefur tvisvar verið tilnefndur til Mercury verðlaunanna eftirsóttu í Bretlandi og einnig til Brit verðlaunanna.
    Hann hefur komið fram sem gestur á plötum með t.d. Arctic Monkeys, Manic Street Preachers, Elbow, Duane Eddy, Nancy Sinatra, Shirley Bassey og Paul Weller.
    Hann hefur gefið út 9 stórar plötur og hann söng lokalagið í fimmtu seríu á Peaky Blinders, lagið ballad of a thin man eftir Bob Dylan.
    Hans fyrirmyndir eru menn eins og Duane Eddy, Roy Orbison og Scott Walker – Richard Hawley er einskonar Crooner -með rafmagsngítar –
    Hann er frábær lagasmiður og aðdáendum hans fjölgar jafnt og þétt, svalur gaur og frábær músíkant sem blandar saman rómantískum ballöðum og svölu gamladags rokki.
    Hann er búinn að vera að fylgja eftir nýjustu plötunni sinni – sem heitir "In This City They Call You Love" og hefur farið víða.
    Tónleikar kvöldsins fóru fram í Brussel í æðislegu húsi sem var byggt 1857 – Ancienne Belgique og tekur um 2000 manns.
    Ríkisútvarpið í Belgíu tók upp – BEVRT – fyrir útvarpsstöðvarnar í EBU.
    1 hr 55 min
  • Gildran á Bræðslunni 2024 og Vinir Dóra á Blúshátíð 2013
    Í Konsert í kvöld ætlum við að fara áratug aftur í tímann á 10 ára afmæli Blúshátíðar í Reykjavík sem fór fram þá eins og oftast – á Hótel Nordica. Og við ætlum að hlusta á Vini Dóra og minnast blúsforingjans hans Dóra – Dóra Braga – Halldórs Bragasonar sem lést af slysförum núna fyrir skemmstu. – Blúsman Islandus – blessuð sé minning hans.
    En við förum líka á Bræðsluna núna í sumar og rifja upp eina tónleika þaðan, með Gildrunni úr Mosfellsbænum.
    1 hr 55 min
  • Oasis á Hultsfredfestival 1994
    Í Konsert í kvöld heyrum við í Oasis ogg tilefnið er auðvitað endurkoma Oasis næsta sumar. Gallagher bræður búnir að slíðra sverðin sem þeir hafa verið að veifa í áttina hvor að öðrum í 15 ár, eða síðan það sauð endanlega uppúr fyrir tónleika sem áttu að fara fram á Rock en Sein hátíðinni í París 28. Ágúst 2009.
    En fyrir 30 árum síðan – 29. ágúst 1994 kom út ein merkasta plata 9 tugarins, fyrsta breiðskífa Oasis; Definitely Maybe.
    1 hr 57 min

About Konsert

From the publisher's feed

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir…