Staða ungra kvenna í Mið-Austurlöndum var umræðuefni málþings sem haldið var í tengslum við útkomu bókinnar Framúrskarandi dætra hjá Sölku.
Frummælendur voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal en þau hafa öll yfirgripsmikla þekkingu á málefnum Mið-Austurlanda og hér má heyra hluta af fyrirlestrum þeirra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrrverandi umdæmisstjóri UN Women fyrir Evrópu og Mið Asíu. Áður var Ingibjörg yfirmaður UN Women í Afganistan. Ingibjörg átti stóran þátt í auknum hlut kvenna í stjórnmálum á Íslandi og tók hún sæti í borgarstjórn 1982 fyrir kvennaframboðið og var síðar þingkona Kvennalistans á árunum 1991 til 1995. Ingibjörg Sólrún tók aftur sæti á þingi á árunum 2005 til 2009 og var hún utanríkisráðherra á árunum 2007 til 2009. Ingibjörg Sólrún var borgarstjóri Reykjavíkur 1994 til 2003.
Þórir Jónsson Hraundal er umsjónarmaður Mið-Austurlandafræða og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast helst að arabískum miðaldatextum og vitnisburði þeirra um víkingaöldina.
Guðrún Margrét Guðmundsdóttir hefur sterk tengsl við Mið-Austurlönd og nú síðast dvaldi hún í Kaíró í Egyptalandi þar sem hún starfaði í sex mánuði hjá Friðgæslunni hjá World Food Program sem kynjaráðgjafi. Guðrún hóf doktorsnám í mannfræði til að rannsaka kvennabaráttuna í Katar þar sem hún bjó sem unglingur og ung kona. Guðrún bjó einnig í Sameinuðu furstadæmunum, Kuwait og Yemen frá 15 ára til 25 ára og gifti sig og eignaðist börn þar. Guðrún hefur bæði BA og MA próf í mannfræði og talar arabísku.