Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Sölvi Áskriftarþættir:How many episodes does Sölvi Áskriftarþættir have?The podcast currently has 459 episodes available.
February 18, 2024#252 Arnór Sveinsson með Sölva TryggvaArnór Sveinsson er sérfræðingur í öndunar- og kuldaþjálfun sem hefur undanfarin ár eingöngu unnið við að aðstoða fólk við að koma taugakerfinu og líkamanum í betra stand. Arnór skipti algerlega um takt í lífinu eftir að hafa misst frænda sinn og náinn vin í hræðilegu slysi. Hann hafði í áraraðir verið sjómaður og djammaði mikið á milli túra. En eftir slysið leitaði hann á önnur mið og ferðaðist víða um heim til að læra alls kyns hluti sem snúa að heilsu. Í þættinum ræða Sölvi og Arnór um stórmerkilega sögu Arnórs, leiðir til að finna jafnvægi, kuldaþjálfun, öndun, taugakerfið og margt fleira....more1h 16minPlay
February 11, 2024#250 Davíð Bergmann með Sölva TryggvaDavíð Bergmann hefur í áratugi starfað með börnum og unglingum í vanda og brennur fyrir málaflokkinn. Honum var sjálfum hafnað af skólakerfinu og segist sjá sjálfan sig í krökkunum sem hann vinnur með. Í þættinum ræða Sölvi og Davíð um sögu Davíðs, afbrot, undirheima, leiðir til úrbóta og margt fleira....more1h 8minPlay
February 06, 2024#249 Guðrún Bergmann með Sölva TryggvaGuðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki, skrifa fjölda bóka og margt fleira. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, samfélagsmál, fjölmiðla, samsæriskenningar og margt fleira. ...more1h 4minPlay
February 04, 2024#248 Gunnlaugur Guðmundsson með Sölva TryggvaGunnlaugur Guðmundsson er reyndasti stjörnuspekingur Íslands og á magnaða sögu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stjörnuspeki, hvað er að gerast í heiminum, árin þar sem Gunnlaugur flakkaði um og leitaði að tilgangnum og margt fleira....more1h 37minPlay
January 31, 2024#247 Gunnar Wiium - Frelsandi að vera berrassaðurGunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur víða komið við. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, neyslu, græðgi, hugvíkkandi efni, naktar gufuferðir og margt margt fleira....more1h 40minPlay
January 28, 2024#246 Kristján Gíslason - Ég klökkna enn þegar ég hugsa um þauEftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað Kristján Gíslason að tími ævintýranna væri runninn upp. Árið 2014 fór hann hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og margt fleira. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að sjá heiminn og margt fleira....more1h 30minPlay
January 23, 2024#245 Brynjar Níelsson með Sölva TryggvaBrynjar Níelsson er lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt margt fleira....more1h 16minPlay
January 22, 2024#244 Sveinn Kjartansson með Sölva TryggvaSveinn Kjartansson matreiðslumeistari greindist með HIV veiruna á fyrri hluta níunda áratugarins. Hann lýsir því í þættinum hvernig var að ganga með þessa handsprengju innanklæða á tíma þar sem útskúfunin var algjör. Neyslunni sem kom í kjölfarið og endaði á að fara með hann alla leið á botninn og svo upprisunni og fegurðinni í lífi hans í dag....more1h 7minPlay
January 16, 2024#243 Heimir Hannesson með Sölva TryggvaHeimir Hannesson er blaðamaður og frumkvöðull sem talar tæpitungulaust. Í þættinum ræða Sölvi og Heimir um fjölmiðla, stjórnmál, stöðuna í samfélaginu, ferðalög og margt fleira....more1h 21minPlay
FAQs about Sölvi Áskriftarþættir:How many episodes does Sölvi Áskriftarþættir have?The podcast currently has 459 episodes available.