Spurt og svarað

Spurt og svarað

Download on the App Store

All Spurt og svarað episodes

  • Afkomukvíði, jólasparnaður og dýrasti tölvuleikur allra tíma

    Björn Berg ræðir um afkomukvíða vegna jóla, hversu mikið dýrari jólin verða en í fyrra og hvernig draga megi úr útgjöldum. Spurningu hlustanda er svarað, sem hefur áhyggjur af framfærslu sinni á lífeyrisaldri og litið er á ótrúlegar fjárhæðir í tengslum við útgáfu GTA 6, dýrasta tölvuleiks allra tíma.


    (00:55) Langtímasparnaður: bankareikningur eða verðbréf?
    (03:50) Afkomukvíði vegna jólanna?
    (07:40) Hvað kosta jólin í ár?
    (10:25) Breyttar jólahefðir
    (16:08) Jólatónleikar og jólahlaðborð: kostnaðurinn getur safnast upp
    (17:36) Skipuleggðu útgjöldin með jólareiknivélinni
    (19:04) GTA 6: dýrasta afþreyingarvara allra tíma?
    (29:09) Spurning frá hlustanda: Hvernig veit ég hvort ég geti hætt að vinna?
    (38:44) Lífeyrisnámskeið og afsláttarkóði
    (39:37) Næsti þáttur: svik og netsvindl

    Jólareiknivél: https://www.bjornberg.is/reiknivelar/jolareiknivel
    Hagtölur á mannamáli: https://www.bjornberg.is/hagtolur

    Kynntu þér Spesíu á https://www.spesia.is

    Sendu þættinum spurningu: https://www.bjornberg.is/spurtogsvarad

    Stef þáttarins:  Never Ending Night, eftir Morgan Willis. Sjáið meira á https://morganwillismusic.com

    41 min
  • Fjárfestingar - 5 algeng mistök og hlutabréfakaup

    Björn Berg ræðir ýmsar hliðar fjárfestinga. Rætt er um fimm algeng mistök almennra fjárfesta á hlutabréfamarkði. Hvernig varð Volkswagen verðmætasta fyrirtæki heims? Er betra að ávaxta peninga í sjóði eða á bankabók, þegar litið er á skattalegu hliðina? Af hverju er svona lítið talað um erlenda vísitölusjóði?

    (01:58) 5 algeng mistök sem einstaklingar gera þegar þeir fjárfesta

    (10:41) Þegar markaðurinn hagar sér asnalega: Volkswagen og skortsala

    (18:21) Af hverju fjárfesta ekki allir í S&P 500?

    (26:23) Frítekjumark eða skattfrestun? Hvort kemur betur úr?

    (32:22) Lífeyrissjóðir sameinast

    (36:36) Nýjar reiknivélar og ólíkar leiðir við niðurgreiðslu húsnæðislána

    Þáttastjórnandi: Björn Berg Gunnarsson

    Sendu þættinum spurningu: https://bjornberg.is/spurtogsvarad

    42 min
  • Útsöludagarnir framundan - Má gefa börnunum sínum peninga?

    Páll Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður er gestur þáttarins. Hann útskýrir meðal annars muninn á sambúð og hjónabandi þegar keypt er íbúð og hvernig foreldrar mega styrkja börnin sín fjárhagslega.

    Stóru útsöludagarnir eru framundan og við skoðum sögu þessara daga, hvernig útsölur og afslættir geta aukið við einkaneyslu okkar og hvernig best megi nýta afsláttardagana.

    Við lítum að lokum á nýjar verðbólgutölur og hvort þær séu jafn jákvæðar og ætla mætti af umræðunni.

    Taktu þátt og sendu þættinum spurningu á https://www.bjornberg.is/spurtogsvarad

    Kaflar þáttarins

    02:47 Páll Kristjánsson, hrl.
    04:13 Hjúskapur og kaupmáli
    05:51 Sambúð og kaup á íbúð saman
    07:08 Ójafnt eignarhlutfall og afsal
    08:26 Slit á sambúð
    09:23 Að styrkja börn fjárhagslega
    10:02 Gjafir og erfðafjárskattur
    11:28 Lán eða skuldabréf frá foreldrum
    14:16 Jólaverslun og netverslun
    15:12 Dagur einhleypra, svartur föstudagur og stafrænn mánudagur
    18:33 Netsvik og varúð í netverslun
    21:30 Saga dags einhleypra
    23:16 Saga svarts föstudags og stafræns mánudags
    25:35 Eru útsöludagar góðir?
    27:21 Eru afslættir raunverulegir?
    29:23 Hvernig afslættir hafa áhrif á okkur
    31:51 Greiðsludreifing og tímapressa
    34:02 Afsláttarkóði á vefnámskeið
    34:40 Nýjustu verðbólgutölur

    40 min
  • Hrekkjavakan - Hræðileg mistök og tekjuhæstu hryllingsmyndirnar

    Í sérstökum hrekkjavökuþætti er er rætt um hræðileg mistök sem starfsfólk í fyrirtækjum hefur gert, litið er á tekjuhæstu hryllingstölvuleikina og tekjuhæstu hryllingsmyndirnar sem frumsýndar hafa verið um hrekkjavökuna. Við skoðum útgjöld heimilanna til hrekkjavökunnar í löndunum í kringum okkur auk þess sem innsendri spurningu hlustanda er svarað.

    Taktu þátt og sendu þættinum spurningu á https://www.bjornberg.is/spurtogsvarad

    Kaflar

    00:00 — Efni þáttarins
    01:55 — Hrikaleg mistök í fyrirtækjarekstri
    02:09 — Citibank og Revlon: 109 milljarða millifærsla fyrir mistök
    05:39 — Starfsmaðurinn sofnaði á lyklaborðinu
    08:12 — Alitalia og verðmistök á flugmiðum
    08:38 — Klúður Pepsi á Filippseyjum 1992
    12:01 — Hrekkjavakan stærri en öskudagurinn á Íslandi
    12:30 — Hrekkjavakan á Norðurlöndum: Svíþjóð, Danmörk og Noregur
    14:51 — Bandaríkin: 1.600 milljarðar króna og innkaup færast framar í dagatalið
    16:37 — Í hvað fer féð: búningar, skreytingar, sælgæti og kort
    17:59 — Vinsælustu búningarnir í ár
    18:26 — Tekjuhæstu hryllingstölvuleikir allra tíma
    21:06 — Spurning frá hlustanda: viðbótarlífeyrissparnaður og tilgreind séreign
    25:50 — Bíómyndir: af hverju fréttir um bíógróða eru oft rangar
    27:18 — Tekjuhæstu hryllingsmyndirnar um hrekkjavöku

    33 min
  • Hvað er að kunna að fara með peninga? Hvert stefnir verðbólgan?

    Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins svarar Björn Berg spurningu sem send var inn.
    📈 Rætt er um nýja verðbólguspá og um fermingarpeninga frá árinu 1983 sem fundust inni í hljómborði.

    Taktu þátt og sendu þættinum spurningu á bjornberg.is/spurtogsvarad

    Kaflar

    00:00 — Nýr þáttur: Spurt og svarað
    00:54 — Sendu þættinum spurningu
    01:22 — Spurning: Að fara vel með peninga
    05:28 — Hvað þýðir að kunna að fara með peninga?
    06:27 — Mánaðarmót segja ekki alla söguna
    07:21 — Hugarfar og viðhorf í fjármálum
    08:16 — Hvernig tökum við fjárhagslegar ákvarðanir?
    08:45 — Að græða peninga er ekki það sama og að fara vel með þá
    10:15 — Þrjú einkenni fólks sem fer vel með peninga
    16:57 — Ný verðbólguspá: Hvað er fram undan?
    22:58 — Fermingargjafir frá 1983 og verðgildi peninga

    29 min
  • Stikla

    Í þættinum Spurt og svarað ræðir Björn Berg um það sem þú þarft að vita um peninga. Spurningum hlustenda er svarað og rætt um hinar ýmsu hliðar fjármála.

    Sendu inn spurningar og kynntu þér þáttinn á bjornberg.is/spurtogsvarad

    1 min