Leitin að peningunum

Spurt og svarað um fjárfestingar - Már Wolfgang Mixa


Listen Later

Már Wolfgang Mixa starfar sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur langa starfsreynslu af fjárfestingum og stýringu fjármuna í íslensku bankakerfi og erlendis. 
Már ræðir hér fjárfestingar og gefur góð ráð við ávöxtun peninga.  Þetta viðtal er mjög yfirgripsmikið og nokkuð langt en hér er farið á dýptina þegar kemur að sparnaði og fjárfestingum.

Meðal þess sem hér er rætt 

  • Er hægt að tímasetja markaðinn varðandi kaup á hlutabréfum? 
  • Þegar Már hóf sinn starfsferil í kringum aldamótin, var mikil netbóla á Íslandi auk þess sem Decode Genetics var heitasta fyrirtækið. 
  • Hann ræðir um mikilvægi þess að halda stefnu þegar kemur að fjárfestingum og ekki elta umræðuna í samfélaginu. Hún er oft þveröfug við það sem skynsamlegt er að gera.
  • Mikilvægast er að taka aldrei meiri áhættu en maður getur kyngt. Og maður skal aldrei verða ástfanginn af hlutabréfum. 
  • Már sýnir dæmi um að hlutabréf geta verið skynsamlegar fjárfestingar á íslenskum hlutabréfamarkaði.  
  • Hvaða ávöxtun hefði  íslenskur fjárfestir fengið eftir Hrunið í október 2008, hefði hann  keypt í Marel, Össur, Actavis og bönkunum þremur árið 2001? 
  • Hann fjallar um séreignarsparnaðinn sem er í dag einn mikilvægasti sparnaður okkar allra. Hvort sem upp koma áföll eða við kaup á fyrstu íbúð eða við innborganir á íbúðalán. Skattleysi séreignarsparnaðar við kaup á íbúð eða við innborganir á lán gerir hann að mjög vænlegum kosti. 
  • Már fjallar um fjárfestingar erlendis og gefur góð ráð þegar kemur að þeim. 
  • Við ræðum um ólíkar áherslur við fjárfestingar eftir aldri. 
  • Verðtryggð og óverðtryggð lán fá mikið vægi enda er fasteign fyrir flesta stærsta fjárfestingin á lífsleiðinni.  Auk þess sem við veltum fyrir okkur hvernig fasteignaverð muni þróast. 
  • Fjármálalæsi Íslendinga er svo að endingu til umræðu auk þess sem við spyrjum Má um bestu fjárfestingu hans og hans stærstu mistök. 

Bloggsíða Más
https://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/marmixa/

Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson 
Þessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. 
 

 

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Leitin að peningunumBy Umboðsmaður skuldara

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

6 ratings


More shows like Leitin að peningunum

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners