
Sign up to save your podcasts
Or


Ívar ólst upp í Vestmannaeyjum í miklum sársauka og sorg en þegar hann fæddist höfðu foreldrar hans þegar misst tvo syni. Hann varð afar meðvirkur og þróaði síðan með sér fíkn.
Hávarður Máni lést 2. september 2025 eftir að hafa verið fastur í geðrofi í rúmt ár. Hilma Dögg, móðir hans segir okkur söguna hans og ferlið eftir að hann lést.
Klara, móðir Anítu, sem nú er vistuð í einangrunarklefa á Hólmsheiði vegna plássleysis segir okkur frá stöðunni og meðferðinni sem dóttir hennar þarf að þola.
Óskar er þriggja barna faðir að vestan sem ólst upp við mikinn alkóhólisma, rótleysi og vanrækslu. Hann byrjaði ungur í neyslu til að deifa eigin vanlíðan og flýja raunveruleikann. Hann hefur verið í bata í rúm fimm ár.
Guðbjörg Inga sem var þekkt áður sem önnur af tvíeykinu Jói og Gugga er búin að vera edrú og í bata í 15 ár. Hún byrjaði ung í neyslu og segir okkur sína sögu.
Ísak er 25 ára strákur úr Hafnarfirði sem passaði aldrei inn í skólakerfið og lenti í einelti. Hann leitaði mjög ungur í neyslu og fann þar fyrst frið og upplifði að tilheyra.
Tómas er 38 ára tveggja barna faðir sem fæddist í Bandaríkjunum þar sem mikil neysla og ofbeldi, af öllum toga, einkenndi heimilislífið og hans uppvöxt. Hann á stóra, mikla og átakanlega sögu.
Fanney er 38 ára gift, tveggja barna móðir sem hefur þurft að eiga við kerfið vegna eldri dóttur sinnar en fær hvergi aðstoð.
Tinna er 41 árs gift, fjögurra barna móðir sem var ættleidd frá Sri Lanka. Hún var lögð í einelti í grunnskóla og um átta ára aldur ættleiddu foreldrar hennar 12 ára dreng sem misnotaði hana kynferðislega.
Hafdís Bára er tveggja barna móðir og mikil sveitastelpa sem hefur gengið í gegnum hreint helvíti vegna seinni barnsföður síns. Löngu og ömurlegu ofbeldissambandi lauk með morðtilraun af hans hálfu.
From the publisher's feed

468 Listeners

215 Listeners

122 Listeners

131 Listeners

2 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

70 Listeners

29 Listeners

22 Listeners

14 Listeners

6 Listeners

27 Listeners

12 Listeners

3 Listeners