Stefnumót

Svarfdælingarnir Óskar Þór Halldórsson og Jóhann Pétursson


Listen Later

Jóhann Svarfdælingur var kynntur víða um lönd sem heimsins stærsti maður. Hann kvaddi dalinn sinn ungur og segja má að ævin hans hafi oft á tíðum verið mjög átakanleg. Óskar Þór Halldórsson heyrði ungur af Jóhanni og síðar kviknaði áhugi hans á því að kynna sér sögu hans betur. Óskar gerði heimildamynd um Jóhann árið 2001 sem heitir Stóri Íslendingurinn. Í þættinum eru spilaðir stuttir bútar úr Kvöldgestaþætti Jónasar Jónassonar, þar sem Jóhann var gestur og úr Sjónvarpsþætti þar sem Ólafur Ragnarsson talaði við Jóhann. Lagið sem er spila heitir Svarfarðardalur kæri og er flutt af Karlakór Dalvíkur. Stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson Ljóðið er eftir Hjalta Haraldsson ( Ytra Garðshorni ) Umsjón: Margrét Blöndal. Lagið er eftir Guðmund Óla Gunnarsson Heimildamynd Óskars um Jóhann má sjá hér: https://www.youtube.com/watch?v=itIYGkfEEbU
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

StefnumótBy RÚV