Taboo hlaðvarp

Taboo hlaðvarp

By Árni Björn og Guðrún ÓskSociety & CultureHealth & FitnessSexuality
Download on the App Store

All Taboo hlaðvarp episodes

  • Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir

    Hæ og velkomin í þátt númer 10 í annarri seríu af Taboo.

    Bjargey Ingólfsdóttir er sennilega mörgum kunn enda hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún er félagsráðgjafi að mennt, jógakennari, fyrirlesari og fararstjóri en umfram allt bara ótrúlega opin og skemmtileg manneskja sem er óhrædd við að tala um lífið eins og það er.

    Við fengum Bjargeyju til okkar í virkilega skemmtilegt og einlægt spjall þar sem við fórum út um víðan völl. Við ræddum meðal annars sambönd, kynlíf, sjálfsmynd, stefnumótaheiminn og hvernig það er að byrja aftur að deita á fullorðinsárum með aðeins meiri lífsreynslu og kannski aðeins skýrari hugmynd um hvað maður vill.

    Ótrúlega skemmtilegt spjall og eins og alltaf fórum við um víðan völl! Njótið vel :) 

    1 hr 18 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 9. - Helgi Jean Claessen

    Hæ elskurnar

    Þessi þáttur var algjör negla! Við fengum til okkar Helga Jean aka KakóHelgi aka Graðasti maður íslands. Við áttum ótrúlega skemmtilegt spjall og fengum að heyra söguna hans Helga og hvar hann er staddur í dag í sínu ferðalagi. Ræddum um fjölástir, kynlíf, hugvíkkandi ferðalög, Kakóserimóníur, Kakókastalann ofl. ofl. 

    Njóttu vel! 

    1 hr 13 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 8. - Gott kynlíf?

     Velkomin í nýjan þátt af Taboo.

     

    Við förum svolítið um víðan völl en ræðum aðallega hugtakið "gott kynlíf". Hvað er það og hvað þarf til? Er til eitthvað eitt rétt "gott kynlíf" eða er þetta afstætt. Er hægt að vita með vissu að maður sé góður í kynlífi?

     

    Skemmtilegar pælingar. Njótið vel!

    52 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur7. - Matilda Gregersdotter

    Í þessum þætti fengum við frábæran gest eða hana Matildu Gregersdotter. Matilda er MCC markþjálfari með yfir 20 ára reynslu sem markþjálfi. Hún er líka mikil áhugamanneskja um Tantra, kynlíf og hinn andlega heim. Hún kom að stofnun Wild Love hátíðarinnar sem hefur verið haldin árlega undanfarin á hér á Íslandi og hún skrifaði líka bókina "Daily Sex" sem er hálfgerð dagbók þar sem hún talar um þá ákvörðun að stunda kynlíf daglega með manninum sínum, sem hún hefur núna gert síðan 2008!

     

    Ótrúlega skemmtilegt, fræðandi og nærandi spjall við magnaða konu.

     

    Njótið vel. 

    53 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 5. - Kara og Viktor aka Lovetwisted

    Velkomin aftur!

    Í þessum þætti fáum við í fyrsta skipti gesti til okkar! Mikil tímamót fyrir Taboo :)

    Við spjöllum við parið Köru og Viktor sem ganga undir nafninu Lovetwisted bæði á SDC, onlyfans og fleiri vettvöngum á netinu. Þau eru virk í lífsstílnum, eru í opnu sambandi og hafa haldið stærstu swing party á Íslandi. Ótrúlega gaman að fá þau í spjall til okkar.

    Njótið vel.

    1 hr 1 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 4. - Að taka skrefið

    Hæ og velkomin aftur!

    Í þessum þætti ræðum við aðeins um hvernig það er að taka skrefið og byrja að explore-a hluti saman sem par, hvort sem það er swing, opin sambönd etc.

    Þetta getur verið erfitt og tricky og við förum aðeins yfir okkar sögu og okkar lærdóm af þessu.

     

    Njótið vel

    49 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 3. - Snapchat og samfélagsmiðlar

    Hæ þið! 

    Í þessum þætti ræðum við um taboo hliðina af Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum. Snapchat er ákveðið fyrirbæri útaf fyrir sig sem okkur fannst mjög gaman að ræða um. Ef þið viljið fylgja okkur á snapchat þá finnið þið okkur undir @taboo.parid

    Njótið vel

    51 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 2. - Viðurkenning

    Hæ hó og velkomin aftur

     

    Í þættinum í dag spjöllum við um viðurkenningar og þá aðallega þörfin á að fá viðurkenningu frá öðrum. Hvaðan það kemur og hvernig það snertir við okkur.

     

    Njótið vel.

    43 min
  • Þáttaröð 2 - Þáttur 1. - $ex Workers

    Hæ elsku bestu! 

     

    Við erum mætt eftir smá frí og verðum vikulega næstu vikurnar. Mikið af spenanndi þáttum framundan í þáttaröð 2. Við ætlum að kafa dýpra í ákveðin málefni eins og opin sambönd og swing sem dæmi en í þættinum í dag ræðum við um $ex Workers. Ótrúlega áhugavert viðfangsefni að okkar mati. 

     

    Njótið vel.

    43 min