Í þættinum í dag ætlum við að velta fyrir okkur tækni í ýmsum myndum, áhrifum hennar á líf okkar og list.
Við ræðum við Graham Taylor, prófessor í tölvugreind í Guelph háskóla í Kanada, um nýjungar innan tæknigeirans, um gervigreind, djúpnám og ýmislegt fleira.
Um síðustu helgi var sýnt á sviðslistahátíðinni Reykjavík Fringe Festival, sýndarveruleika-leikverkið Kassinn. Verkið vakti athygli erlendra hátíðarhaldara og verður meðal annars sýnt aftur á Stockholm Fringe hátíðinni í september. Forsprakkar leikhópsins Huldufugl eru Nanna Gunnars og Owen Hindley, en auk þeirra koma leikarinn Ástþór Ágústsson og tónlistarkonan Íris Thorarins að verkinu.
Ein fyrsta almenna umfjöllun Ríkisútvarpsins um GSM-síma var í sjónvarpsþættinum Dagsljós í nóvember 1994. Þar er GSM síminn kynntur til sögunnar, notagildi hans og þjónusta. Við rifjum upp þessa sögulegu umfjöllun.
Við veltum fyrir okkur einsemdinni með Hermanni Stefánssyni rithöfundi. Bók hans Leiðin út í heim, sem kom út hjá bókaútgáfunni Sæmundi árið 2015 er bók vikunnar á Rás 1.