Bandaríska kántrí poppstjarnan Taylor Swift gaf nýverið út sína áttundu stúdíó plötu, folklore. Platan náði samdægurs rúmum 80 milljónum streyma á Spotify og sló þar með met í sögu veitunnar fyrir flestan fjölda streyma hjá tónlistarkonu fyrsta daginn eftir útgáfu. Við kynnum okkur folklore í þætti dagsins en platan fær afburðadóma frá menningarrýnum helstu miðla erlendis, og hefur vakið lukku meðal aðdáenda og víðar. Helga Margrét Höskuldsdóttir, dagskrárgerðarkona á RúvNúll, ræðir um málið.
Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði við Háskóla Íslands, heimsækir líka þáttinn og veltir upp spurningunni Hefur samtímalist áhrif á samfélagið. Við beinum sérstaklega sjónum okkar að styttum í opinberum rýmum og hvernig þær hafa vakið umtal og jafnvel reiðiviðbrögð í samfélögum, bæði nýlega og í gegnum söguna.
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og alþingismaður, er gestur síðari hluta Tengivagnsins. Við ræðum líf, list, þing, sjó, tónlist, og sitthvað fleira út frá þema dagsins sem að þessu sinni er harmónía.