
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti tökum við gott spjall við Jón Böðvarsson (RT10) nýliða ársins og Tómas Ísleifsson (RT14) teiblara ársins, innan Round Table Ísland. Markmiðið er að fá innsýn í þeirra persónulegu reynslu af starfinu, hvað einkennir virka og jákvæða meðlimi, hvað dró þá inn í samtökin og hvaða áhrif þátttakan hefur haft á líf þeirra.
Þátturinn er jafnframt tækifæri til að varpa ljósi á þær sögur og upplifanir sem gera Round Table að því sem það er – samfélagi þar sem einstaklingar vaxa, taka þátt og hafa áhrif.
Þáttastjórnandi er Viktor A. Bogdanski (RT8)
Í þessum þætti förum við yfir þrjá af þekktustu viðburðum Round Table á Íslandi. Rafn Sigurðsson úr RT2 segir frá Skötunni, Sigurjón Friðriksson (Grjóni) úr RT16 gefur innsýn í hinn sívinsæla Kótilettufund og Eiríkur Már Rúnarsson úr RT14 kynnir Hrossakjötið og söguna á bak við viðburðinn.
Við ræðum hvernig þessar hefðir urðu til, hvað gerir þær svona vinsælar og hvers vegna þær skipta svo miklu máli fyrir félagslífið innan Round Table. Létt og skemmtilegt spjall um menningu, hefðir og þá upplifun sem sameinar Teiblara um allt land.
Þáttastjórnandi er Rafn Sigurðsson (RT2).
Hvernig er að stíga sín fyrstu skref í Round Table? Í þessum þætti fáum við hann Gunnar B. Guðbjörnsson (Gussa) úr RT8 til okkar. Gussi, Jónas Ingi og Tómas Dan ræða um fyrstu kynni sín af samtökunum, væntingar, reynsluna af því að mæta á fyrstu fundina og hvernig ný vinátta og sterk tengsl myndast. Persónulegt og heiðarlegt spjall sem gefur góða innsýn í lífið sem nýliði í Round Table.
Þáttastjórnendur þessa þáttar eru Jónas Ingi Jónasson og Tómas Dan Jónsson.
Í þessum þætti fáum við til okkar hann Árna Heiðar Guðmundsson, landsforseta RTIS starfsárið 2025-2026, í opið og persónulegt spjall um leiðtogahlutverk, framtíðarsýn og starfið á bak við samtökin.
Við ræðum áskoranir og tækifæri fylgja því að leiða hreyfinguna og hvernig samtökin halda áfram að þróast með nýjum kynslóðum meðlima. Einnig fáum við innsýn í persónulega reynslu Árna úr starfinu og hvað það er sem gerir þátttöku í Round Table svona verðmæta fyrir svo marga.
Þáttur sem gefur heiðarlega og skýra mynd af hjartanu á bak við hreyfinguna – fólkinu sem heldur henni gangandi.
Þáttastjórnendur þessa þáttar eru Jónas Ingi Jónasson og Tómas Dan Jónsson.
Í þessum fyrsta þætti kynnumst við Round Table Ísland frá grunni. Við rýnum snögglega yfir sögu samtakanna, tilgang þeirra og hvað felst í starfinu – frá félagslífi og tengslamyndun til sjálfsþróunar og leiðtogafærni. Hvað gerir Round Table öðruvísi en önnur félagasamtök, og hvers vegna velja menn að taka þátt?
Létt og opið spjall sem gefur skýra og heiðarlega innsýn í samfélag sem snýst um vöxt, vináttu og sameiginlega reynslu.
Þáttastjórnendur þessa þáttar eru Jónas Ingi Jónasson, Tómas Dan Jónsson og Viktor A. Bogdanski.
From the publisher's feed