Tékk-inn með Helgu og Örnu

Tékk-inn með Helgu og Örnu

By Helga María Finnbjörnsdóttir & Arna Ósk ArnarsdóttirBusiness
Download on the App Store

Tékk-inn með Helgu og Örnu episodes

  • #18 - Uppbygging trausts samhliða árangri
    Við fengum tillögu að þessu skemmtilega umræðuefni og við höfum þó nokkra reynslu af því að vinna að þessu viðfangsefni með teymum. Við segjum frá nálgun Patrick Lencione um árangusrík teymi, eða það sem hann kallar á ensku; Five behaviors of a cohesive team. Fyrir áhugasama þá skrifaði hann bókina The Five disfunctions of a team sem við getum klárlega mælt með og einnig nefnir Arna bókina Overcoming the five disfunctions of a team í þættinum.
    39 min
  • #17 - Helga Halldórsdóttir - "Maður þarf að vera í jafnvægi sjálfur"
    Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion og ræddi við okkur á persónulegu nótunum um hlutverk sitt sem stjórnandi, hvernig hún þróaðist í það hlutverk ásamt því að segja okkur frá þeim spennandi hlutum sem þau hafa verið að vinna að hjá Arion til að byggja upp góða liðsheild og sterka fyrirtækjamenningu. Þetta var virkilega gefandi og fróðlegt samtal og greinilega margt hægt að læra af Helgu og hennar teymi hjá Arion.
    56 min
  • #16 - Lisa Richardson - "I´m sorry but it´s complex"
    Við ræddum við vinkonu okkar Lisu Richardson frá Conscious Consulting um hvernig margt þarf að haldast í hendur þegar kemur að umbreytingarverkefnum. M.a. þarf að stuðla að réttu hugarfari, réttu ferlunum, réttu hegðuninni og því miður er þetta ekki alltaf einfalt. Hér deilir hún reynslu sinni sem ráðgjafi og ræðir þær áskoranir sem hún hefur séð og upplifað í tengslum við umbreytingar hjá fyrirtækjum.
    57 min
  • #15 - Ella Björnsdóttir - Þekkir þú þínar lífsgildrur?
    Í þessum þætti áttum við samtal við Ellu Björnsdóttur, stofnanda og ráðgjafa hjá Valhalla. Hún er reyndur leiðtogi og ráðgjafi sem leggur áherslu á mannlega nálgun, sjálfsþekkingu og meðvitaða forystu.
    Við krufðum aðeins svokallaðar lífsgildrur (blind spots), hvernig þær verða til, hvernig þær hafa áhrif á okkur í daglegu lífi og hvers vegna það er lykilatriði fyrir leiðtoga að vera meðvitaðir um sínar lífsgildrur og vinna með þær.
    Ella deildi einnig innsýn í bókina sem hún er að skrifa og kemur út á árinu. Bókin er sko komin á óskalistann okkar!
    55 min
  • #14 - Dominic Gourley - "If we´re going to change culture we have to step out of the current culture"
    Dominic is an experienced consultant with Human Synergistics Australia and the host of our favourite podcast Culture Bites. He has worked with organizations around the world to build stronger, healthier, and more effective workplace cultures. In our conversation with Dominic, we hear his experience in working with culture and the challenges organizations face when leading culture change.
    53 min
  • #13 - Valgerður Skúladóttir, - "Mér er ekki sama"
    Þurfum við að vera klárasta fólkið í herberginu til að vera góðir stjórnendur? Hér ræðum við Tékk-inn konur við Valgerði Skúladóttur, fyrrum stofnanda og framkvæmdastjórai Sensa. Valgerður er brautriðjandi á sínu sviði, áttaði sig snemma á ferlinum á því hversu mikilvæg sjálfsskoðun er til að verða betri stjórnandi og styðja teymin sín til árangurs. Auðmýktin og heiðarleikinn leynir sér ekki í þessu einlæga samtali.
    1 hr 12 min
  • #12 - Christian Grønbjerg - "We can´t seperate personal development from business development"
    Hér ræðum við við Christian hjá Conscious Consulting um persónulega þróun og vöxt. Hvernig finnum við tilgang okkar? Hvað er l"óðrétt" markþjálfun (vertical coaching)? Hvað þýðir það að vera meðvitaður og til hvers að vera það? Við förum alveg á dýptina í þessum þætti og við fundum algjörlega kraftinn sem felst í því að spyrja sig góðra spurninga.
    1 hr 5 min
  • #11- Tékk-inn konur og Sísí - "Gerum að normi að tala um hegðun"
    Við fengum spurningu frá hlustanda sem snéri að því hvernig stjórnendur geta unnið með starfsfólk sem eru ekki góðir liðsfélagar. Við fengum Sisí til liðs við okkur og gerðum tilraun til að svara þeirri spurningu með þeim ráðum sem við höfum í pokahorninu. Við fórum svo líka um víðan völl, tókum almennilegt tékk-inn og niðurstaðan varð gott og heiðarlegt samtal samstarfs- og vinkvenna.
    53 min
  • Slökunarhugleiðsla
    Hér er stutt hugleiðsla sem er hægt að nýta sér til að róa hugann í dagsins önn. Hugleiðslan er leidd af Örnu og við vonum að þið njótið vel.
    8 min
  • #9 - María Rós Skúladóttir - "Það sem ég vildi að stjórnandinn minn vissi"
    Í þessum þætti ræðum við við Maríu Rós sem er ráðgjafi hjá KPMG en hún hefur m.a. mikla reynslu af stjórnun hjá sveitarfélögum og hefur bakgrunn í félagsráðgjöf. Spjallið fer inn á meðvirkni á vinnustöðum, hvað það er mikilvægt að setja skýr mörk og hvað hugrekkið er mikilvægt í stjórnunarhlutverkinu.
    https://vb.is/skodun/thad-sem-eg-vildi-ad-stjornandinn-vissi/
    44 min

About Tékk-inn með Helgu og Örnu

From the publisher's feed

Þáttur um vinnustaðamenningu, leiðtogahlutverkið, stjórnun og hvernig meðvitund spilar inn í þetta allt saman.