Við höfum fjallað um textíl og hannyrðir í þessari seríu af Glans og til dæmis skoðað mismunandi efni og aðferðir. Í dag ætlum við í aðeins aðra átt og kanna þann fjölbreytta tilgang sem getur legið að baki hannyrðum.
Hvaða þýðingu geta hannyrðir haft? Hvaða ávinning geta þær haft í för með sér - bæði fyrir þann sem stundar þær en einnig samfélagið allt? Er hægt að miðla skilaboðum, svo sem pólitískum skilaboðum, með krosssaumi, hekli og prjóni? Geta hannyrðir haft áhrif? - Og jafnvel átt þátt í því að breyta heiminum til hins betra?
Umsjónarmaður: Katrín Ásmundsdóttir