Félagsráðgjafahlaðvarpið

Þáttur #1 - Steinunn Bergmann


Listen Later

Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið.

Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang.

Við viljum opna lifandi samtöl um fagið, fólkið, áskoranirnar og framtíðina.

Við erum líka að opna alveg nýja leið í fjölmiðlun félagsins með því að dýpka viðtölin í tímaritinu okkar og gefa lesendum kost á að skanna inn QR kóða sem fylgja með greinunum og senda viðkomandi beint í þáttinn.

Það er viðeigandi og ánægjulegt að fyrsti gestur okkar sé formaður félagsins, Steinunn Bergmann.

Í þessum fyrsta þætti ætlum við að ræða stöðuna hjá félaginu, faglega og kjaralega, og verkefni ársins og hvert sé stefnt, en einnig að kynnast manneskjunni á bakvið hlutverkið.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FélagsráðgjafahlaðvarpiðBy Félagsráðgjafafélagið