Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hvað tekur við ÞEGAR þú lendir í einhverju sem snýr tilverunni á hvolf? Þættir um lífsreynslu fólks á öllum aldri, hvarvetna á landinu. María Björk hittir fólk sem hefur sögu að segja.... more
September 12, 2019#7 Hlynur Kristinn Rúnarsson - Sterar, dóp, brotin sjálfsmynd, smygl, brsilískt fangelsi, von og bjartari tímarÞegar Hlynur Kristinn Rúnarsson var 18 ára langaði hann að verða fjármálaverkfræðingur. Þá hafði hann aldrei prófað nein efni né drukkið.Nú 12 árum seinna, þar af sex ár í sterum, fjögur ár í vimuefnum, 14 mánuði í brasilísku fangelsi og árslanga krakkneyslu hefur hann snúið við blaðinu og segir að það sé alltaf von....more29minPlay
August 28, 2019#6 Helena Dejak og Sigurður Aðalsteinsson - GrænlandÞegar Helena Dejak flaug með manninum sínum, Sigurði Aðalsteinssyni yfir litla þorpið Iittoqqortomiit á austurströnd Grænlands í fyrsta sinn fyrir nærri 30 árum, trúði hún ekki að nokkur maður byggi þarna.Fimm árum seinna höfðu þau keypt sér hús á Uunartoq og hafa síðan notið hvers dags sem þau eru þarna. Við heimsækjum þau á ísbjarnaslóðir í næsta þætti ÞEGAR og kynnumst ævintýrunum sem þau hafa skapað og lent í....more28minPlay
August 28, 2019#5 Sólveig Þórarinsdóttir - heilsa, ástin og jógaÞegar Sólveig Þórarinsdóttir viðskiptafræðingur horfðist í augu við að ofurskipulagða líf hennar sem vellaunaður verðbréfamiðlari, að ljúka mastersnámi, hafði ekki mikið innihald ákvað hún að segja skilið við það og snúa sér að því sem skiptir öllu máli í lífinu, ástinni.Sólveig er jógakennari, á og rekur jóga- og heilsusetrið Sólir i Reykjavík og er afar sátt við lífið sitt í dag....more28minPlay
August 28, 2019#4 Hallgrímur Eymundsson - Taugahrörnunarsjúkdómurinn SMA og NPAHallgrímur Eymundsson greindist 2 ára með taugahrörnunarsjúkdóminn SMA, týpu 3.Þegar hann var um þrítugt kynntist hann hugmyndafræði sem kallast NPA - notendastýrð persónuleg aðstoð - um sjálfstætt líf fyrir fólk með fötlun. Hallgrímur segir Maríu Björk frá lífi sínu fyrir og eftir NPA....more28minPlay
August 28, 2019#3 Evelyn Ýr, menningarfræðingur, ferðaþjónustubóndi, leiðsögukona og kennariÞegar múrinn fell í Austur Þýskalandi 9. nóvember 1989, var Evelyn Ýr 16 ára, eldri bróðir hennar flúinn land með Stasi leyniþjónustuna á hælunum.Þegar Evelyn Ýr Kuhne ferðaðist til Íslands í fyrsta sinn, fyrir 24 árum, átti hún ekki von á að finna ástina á hestbaki og setjast að á Lýtingsstöðum, langt úr alfararleið í Skagafirði . Þegar lífið tekur óvænta stefnu er eins gott að sitja vel í ístaðinu .Evelyn Ýr, menningarfræðingur, ferðaþjónustubóndi, leiðsögukona og kennari sest í stólinn hjá Maríu Björk í Þegar....more28minPlay
August 28, 2019#2 Þuríður Harpa - Formaður Öryrkjabandalags ÍslandsÍ þættinum fáum við að heyra sögu Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur, formannis Öryrkjabandalags Íslands. Þuríður er grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands auk þess að vera með díplómu í fötlunarfræðum frá Háskóla Íslands. Líf hennar breyttist á augnabliki þegar að hún datt af hestbaki í Skagafirði og lamaðist fyrir neðan brjóst....more30minPlay
August 28, 2019#1 Gauti Einarsson og Ingvar Þór Björnsson - NýrnagjöfÞegar lífið tekur óvænta stefnu höfum við sögu að segja.Hvað fær þig til að vilja gefa óskyldum manni annað nýrað þitt? Því ætlar Gauti Einarsson lyfjafræðingur á Akureyri að svara.Ingvi Þór Björnsson segir okkur hvernig það er að þiggja líffæri þegar öll sund virtust lokuð....more29minPlay