Þín eigin leið

Þín eigin leið

By PodcaststöðinHealth & Fitness
Download on the App Store

Þín eigin leið episodes

  • #10 ÞÍN EIGIN LEIÐ: FYRIRGEFNING OG MÖRK

    ,,Hlustaðu á líkamann. Kökkur í hálsinum? Hvað er kökkurinn að segja þér?"

    Ófyrirgefin mál geta valdið reiði og gremju og af hverju ættum við að vilja lifa í reiði? Í þessum þætti fara Anna Claessen og Friðrik Agni yfir mikilvægi þess að gera upp gamlar tilfinningar og sár til þess að geta haldið áfram veginn. Og þau velta fyrir sér persónulegum mörkum. Getum við sagt nei?

    Fylgist með @fridrikagni á Instagram og Facebook til að skyggnast á bakvið ÞÍN EIGIN LEIÐ

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og í samvinnu við Laugar Spa Organic Skincare www.organicskincare.is

    1 hr 8 min
  • #9 ÞÍN EIGIN LEIÐ: SIGRÚN KJARTANS

    ,,Stærsta verkefnið mitt í dag er ég sjálf”

    Sigrún Kjartans er sannkölluð ofurkona sem hefur fengist við margt í gegnum ævina. Allt frá grunnskólakennaranum yfir í eigin fyrirtækjarekstur og Zumba. Hún fær orku við að gera hluti og var alin þannig upp að það þyrfti að vinna fyrir sínu. Hún segist hafa sjálfstraust og keppnisskap að eðlisfari og stressar sig ekki um of því að hennar reynslu er alltaf til lausn.

    Fylgist með @fridrikagni á Instagram og Facebook til að skyggnast á bakvið ÞÍN EIGIN LEIÐ

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og í samvinnu við Laugar Spa Organic Skincare (www.organicskincare.is)

    1 hr
  • #8 ÞÍN EIGIN LEIÐ: ALBERT EIRÍKSSON OG BERGÞÓR PÁLSSON

    ,,Þegar ég trúi sjálfur á verkefnið þá er eins og ég sé bara leiddur áfram"

    Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson hafa gengið veginn saman en í sitthvoru lagi síðustu tvo áratugi. Þeir tala um mikilvægi stuðnings í maka, að treysta og trúa á eigin verkefni, að grípa gæsina þegar hún gefst og að tala sjálfan sig upp gegn kvíða og neikvæðni.

    Fylgstu með @fridrikagni á Instagram og á Facebook til að skyggnast á bakvið tjöldin á ÞÍN EIGIN LEIÐ.

    Ertu að tengja við samræðurnar? Deildu þættinum með vinum á Instagram og Facebook og taggaðu mig. Ég vil heyra í þér.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og styrkt af Laugar Spa Organic Skincare.


    1 hr 18 min
  • #7 ÞÍN EIGIN LEIÐ: HÖFNUN OG VIÐURKENNING

    Í þessum föstudags "special edition" er Anna Claessen mætt í Nóa Siríus stúdíóið og við ræðum um þær niðurdrepandi hugsanir og tilfinningar sem við fáum þegar okkur líður eins og okkur sé hafnað.

    Hvaðan kemur þessi stöðuga þörf fyrir viðurkenningu og af hverju gefum við öðrum svona mikið vald á tilfinningum okkar?

    Ath. þessi þáttur er mjög berskjaldaður og ekki fyrir viðkvæma!

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og styrkt af Laugar Spa Organic Skincare

    Fylgstu með @fridrikagni á Instagram og á Facebook til að skyggnast á bakvið tjöldin á ÞÍN EIGIN LEIÐ.

    1 hr 12 min
  • #6 ÞÍN EIGIN LEIÐ: NORMIÐ

    ,,I was here / Ég var hér"

    Hvað viltu skilja eftir þig? Stelpurnar og vinkonurnar Eva og Sylvía skafa ekki utan af mannlega þættinum í hlaðvarpinu sínu Normið.  Þær mættu í ÞÍN EIGIN LEIÐ og við fórum yfir tilganginn með því að tala einlægt um hlutina eins og þeir eru og hve mikilvægt það er að segjast elska fólkið okkar. Segjum það oft og meinum það.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og er styrkt af Laugar Spa Organic Skincare.

    Fylgstu með @fridrikagni á Instagram og Facebook til að skyggnast á bakvið ÞÍN EIGIN LEIÐ.

    Fylgstu með Norminu hér 

    1 hr 18 min
  • #5 ÞÍN EIGIN LEIÐ: SVALA

    ,,Þú verður að halda áfram, áfram og áfram þar til að uppskeran kemur"

    Söngfuglinn Svala hefur sungið inn jólin frá 8 ára aldri og farið sínar eigin leiðir í tónlist og lífinu alveg síðan.

    Svala segir það vera mikilvægt að fylgja ástríðunni því að í henni felst hamingjan en það krefst ásetnings og það er undir okkur komið að vinna vinnuna á hverjum degi.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og er styrkt af Laugar Spa Organic Skincare.

    www.organicskincare.is

    Fylgstu með @fridrikagni á Instagram og Facebook til að skyggnast á bakvið ÞÍN EIGIN LEIÐ.

    1 hr 15 min
  • #4 ÞÍN EIGIN LEIÐ: ÉG ER...

    Til að fara ÞÍNA EIGIN LEIÐ þá þarf að hafa einhverja glóru um hver maður er. Það er sama klisjan: Hver er ég?

    Hvað með að taka spurninguna út og byrja á að segja upphátt eða skrifa Ég er...og klára svo setninguna. Innst inni held ég að við vitum hver við erum.

    Gefðu þér tíma á hverjum degi til þess að nálgast þessa hugsun. Með daglegri athugun byrjar þú að komast nær sjálfinu og uppgötva hvar hjartað slær.

    Prófaðu allavega og sjáðu hvert það leiðir þig.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og er styrkt af Laugar Spa Organic Skincare.

    21 min
  • #3 ÞÍN EIGIN LEIÐ: ÓLAFUR H. MÓBERG

    ,,Aldrei gefast upp”

    Ólafur H. Móberg gefst ekki upp. Í gegnum allskyns mótlæti í lífinu einkennist leiðin hans Óla Helga af ótrúlegu hugrekki og sjálfstrú. Hugrekkið fleytti honum til Ástralíu og Ítalíu og ástríðan hans fyrir leiklist og skapandi vinnu fleytti honum í heim drag senunnar á Íslandi þar sem hann kemur fram undir nafninu Starína.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

    Fylgstu með minni leið á Instagram https://www.instagram.com/fridrikagni/

    Og á Facebook https://www.facebook.com/FridrikAgni

    1 hr 22 min
  • #2 ÞÍN EIGIN LEIÐ: MARGRÉT MAACK

    ,,Þú verður að vera skemmtilegur”

    Danskennari, skemmtikraftur, fjölmiðlakona og móðir. Margrét Maack er kennd við þúsund þjalir en hvað drífur hana áfram? Hvað gerir hana óttalausa? Hver er tilgangurinn að hennar mati? Spennan sem fylgir því að byrja á núllpunkti og að þroskast er m.a. það sem sem fleytir Margréti áfram á leið sinni í lífsins ólgusjó.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

    Fylgstu með á Instagram og Facebook @fridrikagni.

    1 hr 11 min
  • #1 ÞÍN EIGIN LEIÐ: HAFFI HAFF

    ,,Við erum gerð til þess að gera hluti. Ég er með huga, líkama og sál og ég ætla gera allt sem ég get gert því ég, og við, erum lifandi!”

    Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff hefur gefið út popp smelli, er þekktur fyrir yfirdrifna sviðsframkomu og persónuleika en sýndi einnig að hann getur dansað í dansþáttunum Allir geta dansað. Í þessu samtali kemur m.a. fram að Haffi lærir með því að gera, sér tækifærin sem gjafir og gerir því alltaf sitt besta. En stærsta verkefnið er alltaf verkefnið sem hann fæst við í augnablikinu sem er einfaldlega dagurinn í dag og lífið sjálft sem hann tæklar af einskærum kærleik og mögnuðu innsæi.

    *Athugið að þessi þáttur fer fram á bæði íslensku og ensku þar sem Haffi ólst upp í Bandaríkjunum, eins og kemur einnig fram í samtalinu.

    ÞÍN EIGIN LEIÐ er tekið upp í Nóa Siríus stúdíói Podcaststöðvarinnar.

    Fylgstu með á Instagram og Facebook @fridrikagni

    1 hr 28 min

About Þín eigin leið

From the publisher's feed

Ég heiti Friðrik Agni. Ég trúi að við getum farið okkar eigin leiðir í lífinu. Við höfum öll ástríðu, hæfileika og tilgang en erum við að fylgja tilgangi okkar? Ég sjálfur hef farið óhefðbundnar…