Baldvin Kári Magnússon kom til okkar í þessum nýjasta þætti af Þórs Podcastinu. Við ræddum um ýmis málefni tengd Íþróttafélaginu Þór, litum á mótherjana í Inkasso-deildinni í sumar, renndum örlítið yfir handboltann og margt fleira.
Óðinn Svan Óðinsson formaður knattspyrnudeildar mætti í spjall til okkar í nýjasta þættinum. Við vekjum athygli á því að þátturinn var í boði kaffid.is – besti vefmiðill norðurlands!
Ítarlegt viðtal við Ármann Pétur Ævarsson sem framlengdi á dögunum samning sinn við Þór. Hann er því á leið inn í sitt 18. tímabil með meistaraflokki Þórs.
Fyrirliði meistaraflokks karla í knattspyrnu, Sveinn Elías Jónsson, skrifaði undir nýjan samning nú á dögunum. Við tókum hann í ítarlegt viðtal um ferilinn og margt annað.
Fyrsti þáttur af Deyja fyrir Klúbbinn, Þórs podcastinu. Aron Elvar og Jason Orri renndu yfir sumarið, leikina, leikmennina og fleira. Einnig aðeins spáð í spilin fyrir næsta sumar.