Sign up to save your podcasts
Or

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar gaf út sinn 53.þátt í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange, Gests Guðrúnarsonar og Arnars Gunnarssonar.
þeir félagar fóru yfir leikina í 18.umferð í Olísdeild karla. Það helsta sem kom þeim á óvart í þessari umferð var hversu illa Þórsarar fóru með tækifærið að ná í 2 stig gegn Fram en þeir telja að þetta hafi verið lykilleikur fyrir þá ef þeir ætluðu sér að halda sætinu sínu í Olísdeildinni. Þá telja þeir að Valsmenn séu vaknaðir og eins og þeir séu að spila þessa daganna eru þeir til alls líklegir í úrslitakeppninni.
Þá enduð þeir þáttinn á eldheitum umræðum um stöðu handboltans á Akureyri en þeir félagar Gestur og Arnar hafa miklar skoðanir á hlutunum fyrir norðan. Þeir segja að eina vitið að það sé bara eitt lið á Akureyri og ganga svo langt að vilja hreinlega að handknattleiksdeildir KA og Þórs verði lagðar niður og nýtt félag verði stofnað með yngriflokkastarfi og meistaraflokks starfi.
Að lokum völdu þeir hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 18.umferðar. Þeir sem eru tilnefndir að þessu sinni eru, Lárus Helgi Ólafsson (Fram), Geir Guðmundsson (Haukum), Einar Þorsteinn Ólafsson (Valur ), Theodór Sigurbjörnsson (ÍBV) og Adam Thorstensen (Stjörnunni )
By Handboltinn okkarHlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar gaf út sinn 53.þátt í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange, Gests Guðrúnarsonar og Arnars Gunnarssonar.