Leifur Hauksson fjallar um loftlagsbreytingar í tilefni af alþjóðlegu loftslagsráðstefnuna í París. Annar þáttur af þremur.
Hversu mikið megum við nýta af þekktum orkulindum jarðefnaeldsneytis til að halda hlýnun jarðar við 2 gráður? Þetta er ein þeirra spurninga sem velt er upp í öðrum þætti af þremur um loftslagsbreytingar. Það er líka fjallað um sáðmenn efans, öfluga baráttu kolefnaiðnaðarins til að grafa undan vísindum um loftslagsbreytingar. Og það er farið yfir losun íslands á gróðurhúsalofttegundum frá árinu 1990 til dagsins í dag.
Viðmælendur eru Halldór Þorgeirsson, Guðni Elísson, Sigrún Birna Hallsdóttir, Árni Finnson og Halldór Björnsson. Umsjón: Leifur Hauksson