Keppendur þáttarins eru: feðgarnir Sævar Helgi Bragason og Arnór Bragi Sævarsson og mæðgurnar Hómfríður Helga Thoroddsen og Snæfríður Edda Ragnarsdóttir Thoroddsen. Þau eru öll miklir Stjörnustríðsaðdáendur og hefur það áhrif á leikinn í bland við gríðarlegt keppnisskap.
Fjörugur og skemmtilegur þáttur.
Kveikið á kuðungi og keppið með okkur í hlustun.
Umsjón: Sigyn Blöndal
Framleiðsla og spurningahöfundar: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson
Hugmynd og höfundur leiks: Sindri Bergmann
Leikarar: Hera Ólafsdóttir, Karl Pálsson og Rúnar Freyr Gíslason
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson