Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungu... more
FAQs about Þú veist betur:How many episodes does Þú veist betur have?The podcast currently has 157 episodes available.
June 13, 2021TalmeinafræðiÍ dag ætlum við að kafa örlítið ofan í viðfangsefni sem snertir okkur öll. Því öll tjáum við á einhvern hátt, hvort sem það er með tali, höndum, augum eða hvernig sem það er. En á árum áður var kannski venjan að ef barn átti í erfileikum með tal eða tjáningu þá var auðveldast að flokka það bara sem vitlaust, eða heimskt. Í dag höfum við sem betur fer þróað með okkur skilning á því að öll erum við mismunandi og þurfum mismikla hjálp við alls kyns hluti. Og þar komum við að talmeinafræði og hvað hún getur gert fyrir okkur. Hvernig er best að hjálpa barni að læra að tala og tjá sig til dæmis? Ég fékk til mín Kristínu Theodóru Þórarinsdóttur talmeinarfræðing sem útskýrði fyrir okkur hvað það er sem talmeinafræðingar gera og hvaða verkefni þau geta fengið til sín...more33minPlay
June 06, 2021Veður 2.hlutiÍ síðasta þætti tókum við smá rispu varðandi veðrið, hún Elín Björk Jónasdóttir kíkti til okkar og við fórum aðeins yfir söguna og svo líka örlítið varðandi þessi veðurhugtök sem við heyrum svo oft í dag. Við ætlum að halda áfram í þessum þætti, ræða fleiri hugtök sem við áttum okkur kannski ekki alveg á hvað þýða og pæla svo aðeins í framtíðinni. Við enduðum síðasta þátt á því að Elín nefndi að möndulhalli jarðar, sólin og land vs sjór sé í raun ástæðan fyrir öllu veðri og er því eðlilegast að fara aðeins betur í það hvað hún eigi við með því....more42minPlay
May 30, 2021Veður 1.hlutiMér líður eins og það sé að verða venja í byrjun þáttar að ég nefni að umræðuefni þáttarins í þetta skiptið sé allt um lykjandi, og það verði ekki hjá því komist að eiga við það í hinu daglega amstri. Íslenska krónan, vatn, vegakerfið bara til að nefna nokkur dæmi. En einhvernveginn grunar mig að í þetta skiptið séum við komin niður á fyrirbæri sem sameinar okkur öll. Þú getur sleppt því að nota íslensku krónuna og notað frekar stafræna gjaldmiðla, held ég að minnsta kosti. Þú getur drukkið bara gos (sem er þó alltaf búið til úr vatni) og sleppt því að fara í sturtu eða þvegið á þér hendurnar, þú getur jafnvel flutt eitthvað lengst út í sveit og haft það þannig að enginn vegur leiðir að húsinu þínu. En það er ekki nokkur skapaður hlutur sem þú getur gert í veðrinu. Það kemur og fer og er bara eins og það er, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við tölum um það á hverjum einasta degi, sérstaklega þegar það er ekkert annað til að tala um, svo það er kannski kominn tími til að við tölum um það hér. Við skiptum umræðunni upp í tvo hluta, til að troða ekki of miklu efni í einn þátt og gefa heilanum á okkur smá möguleika á því að fylgjast með, en í lok þessa fyrsta þáttar ættu þið vita aðeins meira um sögu veðurs sem og aðeins um það veður sem við eigum hvað mest við hér á íslandi. Ég fékk til mín Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing til að fara yfir málin með okkur....more55minPlay
May 09, 2021Íslenska krónanVið notum hana öll og höfum gert frá því að við munum eftir okkur. Við meðhöndlum kannski peninga í minna mæli, jafnvel ekki neitt lengur en þó að peningarnir okkar séu nánast bara tölur á blaði þá vitum við að þetta eru íslenskar krónur, og þær eru frábrugðnar öðrum krónum. Það er mikið rætt um þennan blessaða gjaldmiðil okkar og oft veit maður ekkert hvort hún sé góð eða vond. Eða hvort hún sé yfir höfuð annaðhvort. Við ætlum ekki að taka afstöðu til íslensku krónunnar í þessum þætti heldur frekar að fara yfir sögu hennar, þróun og hvernig við reynum að stjórna henni. Ég fékk til mín Gylfa Magnússon hagfræðing til að fara yfir málið með okkur...more55minPlay
May 02, 2021IðjuþjálfunMér finnst alltaf gaman þegar ég rekst á viðfangsefni fyrir þáttinn sem ég hef heyrt lítið sem ekkert um, eða veit lítið sem ekkert um, því þá er meira til að læra og fræðast um. Það er svo sannarlega tilfellið í þetta skiptið þar sem við ætlum að fræðast betur um iðjuþjálfun. Sum ykkar hafa mögulega heyrt orðið en hvað þýðir það ef einvher er í iðjuþjálfun, annaðhvort að læra það eða nýta sér aðstoðina sem í henni felst? Ég fékk til mín Andreu Björt nema í iðjuþjálfun til að útskýra þetta allsaman fyrir okkur....more34minPlay
April 25, 2021Arkitektúr 2.hlutiÍ síðasta þætti byrjuðum við að fara yfir arkitektúr og tækluðum þá söguna, enda er af nogu að taka þar. Í þættinum í dag ætlum við að færa okkur yfir í nútímann, hvernig arkitektar í dag vinna, við töluðum um barrok og endurreisnina til dæmis í síðasta þætti sem byggingarstíla sem hafa verið vinsælir í gegnum tíðina, en hvað ætli sé ráðandi á okkar tímum? Við förum einnig aðeins út í framtíðina og hvernig hún gæti verið en við byrjum á spurningunni um arkitektúr í dag og hvernig hann er í samhengi við fortíðina. Eins og síðast þá er það Pétur H Ármannsson arkitekt sem situr fyrir svörum og fræðir okkur um efnið....more34minPlay
April 18, 2021Arkitektúr 1.HlutiÍ gegnum tíðina höfum við oft tekið fyrir viðfangsefni í þessum þætti þar sem ég nefni að eitthvað sé allt í kringum okkur en við áttum okkur kannski á því. Það hefur sjaldan átt betur við en í þetta skiptið. Það skiptir ekki máli hver við erum, við höfum flest fæðst á spítala, að minnsta kosti inn í einhverri byggingu, og sú bygging var hönnuð af einhverjum. Það var einhver sem hugsaði fyrir hvern byggingin væri, hvaða til gangi þyrfti hún að þjóna og hvernig ætti hún að líta út. Og það á við um allar byggingar sem við sjáum, þær verða ekki til að sjálfum sér. En hvernig við horfum á þær er svo annað mál, flest okkar, og ég svo sannarlega þar með talinn eigum erfitt með að útskýra hvað það er sem heillar okkur við hina og þessa byggingu. Við getum svarað spurningunni, hvernig tónlist finnst þér skemmtileg en spurningin hvernig byggingstíll finnst þér fallegastur er kannski aðeins erfiðari viðureignar. Mig langaði því til að kafa aðeins ofan í þetta viðfangsefni og fékk því til mín Pétur H. Ármannsson arkitekt til að fara yfir málin með okkur. Eftir samtal okkar áttaði ég mig á því að arkitektúr er of stórt viðfangsefni til að rúmast í einum þætti svo við skiptum yfirferð okkar í tvo parta, við byrjum á sögunni, sem er næstum jafn gömul og saga mannsins en í næsta þætti ræðum við svo nútíðina og hvað framtíðin gæti borið í skauti sér....more36minPlay
April 11, 2021TölvunarfræðiNú á dögum er nánast fátt sem ekki er búið að tölvuvæða, við göngum um með snjallúr, með snjallsíma í vasanum, sum hver keyrandi um á bílum sem er að einhverju leyti tölvuvæddur og þvottavélin er farin að senda okkur sms þegar þvotturinn er tilbúinn. En allt þetta gerist ekki að sjálfum sér, það þarf einhver að hugsa út í hvernig kerfin eigi að vera, hvernig þau séu búin til, hvað gæti hugsanlega auðveldað okkur lífið. Þar kemur tölvunarfræðin inn. Ég fékk Mörtu Kristínu Lárusdóttur dósent við Háskólann í Reykjavík til að koma til mín og útskýra hvað er átt við þegar talað er um tölvunarfræði....more43minPlay
April 04, 2021PáskarnirÁ þessum páskadegi er við hæfi að setjast aðeins niður og pæla í páskunum sjálfum. Hver er uppruni þessarar hátíðar sem við höldum upp á, hvað gerðist á þessum dögum sem sum okkar halda heilaga, aðrir eru kannski bara fegnir að fá smá frí út úr þeim. Það er því miður lítil útskýring sem fæst á því hvaðan páskaeggin koma, tenging þeirra við kristni er óljós í besta falli en kannski er það bara skemmtileg viðbót. En þessi hátíð kemur á hverju ári og ég fann á sjálfum mér að merking þessara daga var örlítið farin að skolast til hjá mér. Ég held að innihald þáttarins höfði til allra, sama hvað trú þau aðhyllast enda er ekki um að ræða kristniboð heldur yfirferð yfir söguna sem leiðir til páskahátíðarinnar. Ég fékk til mín Arnfríði Guðmundsdóttur guðfræðing til að fræða okkur meira um efnið....more43minPlay
March 28, 2021KvótiÉg held að flest okkar átti sig á mikilvægi fiskveiða fyrir Ísland, oft er talað um sjávarútveg sem eina grunnstoð landsins, jafnvel þá grunnstoð sem sá hvað mest um að byggja það upp. Eina stríðið sem ég veit um að Ísland hafi staðið í er Þorskastríðið, sem er kannski gott efni fyrir annan þátt en er góður mælikvarði á hversu mikilvæg þessi grein er fyrir okkur sem þjóð. En þó við heyrum orðið kvóti oft er það kannski ekki alveg skýrt um hvað er verið að tala, ju, þetta er fiskurinn sem viðkomandi aðili má veiða en hvenær var þetta sett upp, af hverju og hvernig hefur þetta breyst? Ég fékk til mín Hörð Sævaldsson lektor við auðlindadeild Háskólans á Akureyri til að fara yfir málið með okkur og útskýra aðeins betur um hvað er verið að tala....more53minPlay
FAQs about Þú veist betur:How many episodes does Þú veist betur have?The podcast currently has 157 episodes available.