Sign up to save your podcasts
Or

54.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar fór í loftið í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange, Gests Guðrúnarsonar.
Að þessu sinni fóru þeir yfir lokaumferðina í Olísdeild kvenna þar sem bar hæst úrslitaleikur Fram og KA/Þórs um deildarmeistaratitilinn. Þeir félagar hrósuðu norðanstúlkum fyrir að hafa sýnt mikinn karakter í leiknum og náð að snúa leiknum sér í hag í seinni hálfleik eftir að hafa átt í töluverðum erfiðleikum í þeim fyrri. En þeir voru sammála því að KA/Þór átti þenna titil skilið enda hafa þær spilað virkilega vel í vetur og leikmenn liðsins hafa stigið verulega upp og bætt sinn leik frá því í fyrra ásamt því að hafa fengið Rut Jónsdóttur til liðs við sig. Þeir ræddu svo möguleika HK í umspilu um sætið í Olísdeild kvenna en þeir telja að Kópavogsliðið muni klára það umspil en þær þurfa þó að vera á tánum því að þar bíða hættulegir andstæðingar.
Þá fóru þeir yfir úrslitakeppnina í Olísdeild kvenna og rýndu í möguleika liðanna þar. Þeir spá því að Valur hafi betur gegn Haukum og að Stjarnan geri sér lítið fyrir og slái út lið ÍBV.
Að lokum völdu þeir hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 14.umferðar. Þær sem eru tilnefndar að þessu sinni eru, Thea Imani Sturludóttir (Valur), Ásta Björt Júlíusdóttir (ÍBV), Rakel Sara Elvarsdóttir (KA/Þór) og Eva Björk Davíðsdóttir (Stjörnunni )
By Handboltinn okkar54.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar fór í loftið í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange, Gests Guðrúnarsonar.