Hulda Geirsdóttir ræddi við Tómas Knútsson, manninn á bak við Bláa herinn, um uppvöxt hans í Keflavík, vinnu á norskum borpöllum og björgunarstörf eftir Kielland slysið hræðilega þar í landi. Hann sagði líka frá ástríðu sinni á bak við umhverfismálin og því hvernig hann tileinkar allt sitt starf nemanda sínum sem lést í köfunarslysi. Þau Hulda og Tómas ræddu margt fleira í spjalli sínu enda Tómas komið víða við í leik og starfi.
Tónlist:
Bríet - Sólblóm.
Bruce Springsteen and the E Street Band - Ghosts.
John Lennon - Imagine.
Sting - Fields of gold.
Rúnar Júlíusson - Söngur um lífið.
Randy Crawford - One day Ill fly away.