
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti tökumst við á við álitamál tengd kennslu á Harry Potter bókunum, og um þessar mundir rísa þar hæst deilur vegna vafasamrar tjáningar höfundarins J.K. Rowling um transfólk. Til að hjálpa okkur að skilja þessi erfiðu mál mætir María Helga Guðmundsdóttir í samtal. María hefur sterkan grun um að hún eigi heima í Slytherin. Hún myndi þó gera sitt besta til að sannfæra flokkunarhattinn að senda sig í Hufflepuff, enda vistin með besta gildismatið. María sem er þýðandi og karatekennari, spændi í sig Harry Potter-bækurnar sem barn og unglingur. Undanfarin ár hefur hún tekið virkan þátt í réttindabaráttu hinsegin fólks. Hún var formaður Samtakanna ‘78 árin 2016-2019 og tók þátt í því að skrifa frumvarp um kynrænt sjálfræði, sem varð að lögum á Alþingi vorið 2019. Stefið í upphafi og enda þáttarins er úr laginu Óbreytt ástand af samnefndri plötu.
By Ármann HalldórssonÍ þessum þætti tökumst við á við álitamál tengd kennslu á Harry Potter bókunum, og um þessar mundir rísa þar hæst deilur vegna vafasamrar tjáningar höfundarins J.K. Rowling um transfólk. Til að hjálpa okkur að skilja þessi erfiðu mál mætir María Helga Guðmundsdóttir í samtal. María hefur sterkan grun um að hún eigi heima í Slytherin. Hún myndi þó gera sitt besta til að sannfæra flokkunarhattinn að senda sig í Hufflepuff, enda vistin með besta gildismatið. María sem er þýðandi og karatekennari, spændi í sig Harry Potter-bækurnar sem barn og unglingur. Undanfarin ár hefur hún tekið virkan þátt í réttindabaráttu hinsegin fólks. Hún var formaður Samtakanna ‘78 árin 2016-2019 og tók þátt í því að skrifa frumvarp um kynrænt sjálfræði, sem varð að lögum á Alþingi vorið 2019. Stefið í upphafi og enda þáttarins er úr laginu Óbreytt ástand af samnefndri plötu.