Truthbomber Podcastið

Truthbomber Podcastið

Download on the App Store

Truthbomber Podcastið episodes

  • 33. þáttur - Truthbomber gefst upp og gerir clipshow

    Bomberinn snýr aftur eftir langa fjarvist og hyggst skrópa strax aftur, vel og lengi.

    Ferðalög, fréttamennska, Dave Navarro, misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja og hundasund koma við sögu.

    Við þökkum samfylgdina.

    Hlustendur og Benedikt Eggertsson viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

    1 hr 20 min
  • 29. þáttur - Stone Cold Kári Stefáns

    Enn og aftur þrífur Truthbomber í háls sannleikans og þrumar honum í gegnum þrjú borð. Óréttlætið verður tekið föstum höndum og powerbombað fram úr hring hversdagsleikans ofan í hyldýpi loðnuveiða. Svo er líka talað um peninga og life hacks og eitthvað.

    Konur á breytingarskeiðinu viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

    1 hr 31 min
  • 28. þáttur - Töff stöff

    Uppáhalds Bomberinn sinn er ylvolgur í sumarfríi. Að vísu eru öryrkjar auðvitað alltaf í sumarfríi svo kannski er ekkert nýtt uppi á teningnum

    Mótorhjól, Danskir trúboðar, Joseph Kony og líknardráp eru meðal þess sem japlað er á.

    Lemmy Kilmister viljum við fyrirfram biðja afsökunar

    2 hr 4 min
  • 27. þáttur - Freestylað á innsoginu

    Núna er allt farið í skrúfuna hjá Bombernum. Jón gleymir að taka lyfin sín (eða hann tók þau, erfitt að segja). Illugi checkar út andlega.

    Stjána viljum við fyrirfram biðja afsökunar. Og hlustendur almennt bara

    1 hr 27 min
  • 26. þáttur - Fifty shades of Grái fiðringurinn

    Truthbomber taka rösklega af stað inn í sumarið en þurfa svo að setjast niður og teygja svo þeir rífi ekki kálfavöðva.

    Jaðaríþróttir, Metallica, karllægt óöryggi og free range krakkfíklar koma meðal annars við sögu.

    Opruh Winfrey viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

    1 hr 55 min
  • 24. þáttur - Fast end Fjúríös 12: Ass Traffic

    Stórkostleg endurkoma Truthbomber í einhvern kjallara í Kópavogi er heldur betur saga til næsta bæjar! Engir gestir og eitthvað vesen, bara same old same.

    Einelti, sexí bílamenning og mannát eru meðal annars til umræðu.

    Lalla Johns viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

    1 hr 31 min

About Truthbomber Podcastið

From the publisher's feed

Bjartasta von Íslenskrar hlaðvarpsflóru

Hlustaðu eða hlustaðu ekki, þú munt iðrast hvors tveggja.