Gestir Lestarklefans í dag voru þau Arnór Pálmi Arnarsson kvikmyndaleikstjóri, Hildur Knútsdóttir rithöfundur og Þrándur Þórarinsson myndlistarmaður.
Þrjú verk voru til umræðu eins og alla jafna; íslenska kvikmyndin Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttur, Figures in Landscapes, ný sýning eftir Ragnar Kjartansson í i8 og Netflix serían Russian Doll sem Natasha Lyonne leikur aðalhlutverk í og þróaði.
Þáttastjórnandi: Björg Magnúsdóttir.