
Sign up to save your podcasts
Or


Eyþór Árnason, Þorsteinn J. og Þór Freysson upptökustjóri fara til fundar við Jón Hermannsson á Högnastöðum 2, Hjalta Gunnarsson, bónda á Kjóastöðum 2 og Svan Helga Einarsson bónda á Tungufelli.
Árni Bjarnason bóndi á Uppsölum í Skagafirði fer yfir málavöxtu frá því fyrir 245 árum. Ólafur Dýrmundsson búfræðingur segir frá sauðfé á átjándu öld, og Eyþór Árnason mátar á hann spurningar í gríð og erg.
Þorsteinn J. fer til fundar við söguna, rétt fyrir húshornið og upp Sólvallagötuna. Eyþór Árnason segir frá því hvers vegna hann fékk áhuga á örlögum Reynistaðabræðra 1780. „En þessi saga er alls ekki um það sem gerðist“ segir Þorsteinn. „Þessi saga er um hvaða áhrif þessi hræðilegi atburður hafði á fjölskyldu þína Eyþór, og þig sjálfan.“