Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

Download on the App Store

Tveir á toppnum episodes

  • #171 - Patrick Stewart RIP

    Tveir á toppnum minnast Sir Patrick Stewart, missa sig aðeins yfir MobLand, fríka út á langdreginni leitinni að næsta Bond og missa sig í hefðbundnu stefnulausu blaðri um það sem helst fram streymir á gláprásunum.

    52 min
  • #170 - Iceguys: The Movie

    Hannes Þór Halldórsson leikstjóri heiðrar okkur með nærveru sinni í annað sinn, í þetta skiptið í tilefni af Iceguys kvikmyndinni. Ræðum myndina án spilla í sögulegum þætti af Tveir á toppnum sem er líka hægt að horfa á! 

    53 min
  • #169-Halloween - Blóðugustu bitarnir

    Hrekkjavakan er á laugardaginn og Tveir á toppnum tromma því hér upp með sérstakan 2EXTRA-Heví spesíjal Halloween-þátt með því besta úr Hrekkjavökuþáttum síðustu ára (#18, #74 og #124). Suddalega sundurtættur og hryllilegur þáttur sem veitir einnig greinargott yfirlitt yfir hryllingsglápsþroskasögu Odds.

    53 min
  • #168-Slow Horses 6 og allt hitt

    Loksins, loksins! fá Tveir á toppnum löglegt og gullhúðað tækifæri til þess að fjalla um Slow Horses snilldina á Apple TV. Hér er gerð heiðarleg tlraun til þess að gera seríu 6 upp og ná um leið að fjalla um allt hitt. Og þá meinum við ALLT!

    1 hr 6 min
  • #167- The Brink of War

    Í þessum þætti má segja að Tveir á toppnum séu í raun „Two on the Summit“ enda í hvínandi kaldastríðsfílíng, með stjórnmálafræðinginn Eirík Bergmann á línunni, þegar þeir tækla Reykjavíkurdramað The Brink of War með þá Míkhaíl Gorbatsjof og Ronald Reagan í forgrunni bíómyndarinnar um sögulegan fund þeirra í Höfða 1986.

    51 min
  • #166-Digger

    Diggarðu Digger eða ekki? Þar er efinn sem þessi þáttur gereyðir enda ekki í kot vísað þegar Tveir á toppnum fá alhliða bransameistarann Jón Gunnar Geirdal til þess að ræða þessa umtöluðu, umdeildu og að því er virðist stórkostlega misskildu mynd.

    55 min
  • #165-Meiriháttar kombakk!

    Tveir á toppnum bæta fyrir messufall síðustu viku með því að troða bókstaflega ÖLLU í þennan 70 mínútna endurkomuþátt eftir langt veikindaleyfi Tóta. Hvað gerði Oddur á meðan og er eitthvað til í því að Tóti hafi verið meðferð og logið sig veikan á meðan? Þetta er þátturinn með öll svörin!

    1 hr 11 min
  • #164-Ekkjuvogur og Apple TV á Íslandi

    Emmy-verðlaunin eru í brennidepli þáttarins og þá sérstaklega sigurvegari hátíðarinnar, Apple TV, sem er nú loks aðgengilegt á Íslandi með eðlilegum og fullkomlega löglegum hætti. Fagnaðarlæti Odds yfir þessum tímamótum eru dálítið ýkt en fastasti fastagestur þáttarins og maðurinn sem uppgötvaði Ekkjuvogsþættina á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, nálgast tíðindi vikunnar af sinni alkunnu yfirvegun.

    1 hr 7 min
  • #163-Frjálst og óháð bull

    Frjáls tími hjá Tveimur á toppnum þar sem Oddur og Tóti leyfa sér stjórnlausan og ómarkvissan kjaftavaðal. Reyna að selja notuð nagladekk og barnaföt á milli þess sem hrært er í gláppottum líðandi stundar, fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar er minnst og Tóti klárar Mickey Rourke fyrirlestur síðasta þáttar.

    1 hr 3 min
  • #162-Síðasti þáttur fyrir Dómsdag

    Tveir á toppnum breyta um stefnu í síðasta þætti sínum fyrir Dómsdaginn 29. ágúst þegar alþjóðastjórnmálafræðingurinn Oddur Ævar er fenginn til að ræða kosti og galla ESB-aðildar. Þó finnst einnig pláss til að minnast Dollyjar Parton og Tims Curry en Tóti er síðan stöðvaður í miðjum fyrirlestri um Mickey Rourke.

    44 min

About Tveir á toppnum

From the publisher's feed

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á…