Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Tveir kallar:How many episodes does Tveir kallar have?The podcast currently has 51 episodes available.
June 22, 202650: Éttu skítTveir kallar fagna tímamótum í sérstökum hátíðisþætti. Á boðstólum er bakkelsi úr bakaríinu (ekkert vegan) og gestirnir eru hinir íslensku meðalkarlmenn. Athyglissjúki introvertinn sér um skemmtiatriði og í sérstökum lið þarf Þorsteinn að þegja allan tímann (spoiler: það mistekst). Annar kallinn er síðan tekinn fyrir á sviðinu og að lokum velta kallarnir fyrir sér framtíð þáttarins. Svo vill annar þeirra endilega prófa að éta skít....more1h 40minPlay
June 08, 202649: Helvítis lúpínanTveir kallar ganga um í grænni náttúrunni þar til hún hættir að vera græn og verður fjólublá, setja fyrrverandi kærustur (ekki) í minningakassann, ræða skólakerfið út frá kynjum og furða sig á blaðamanni. Svo reyna þeir að hlúa að þeirri litlu geðheilsu sem þeir eiga eftir....more1h 19minPlay
May 25, 202648: Aftur til fortíðarTveir kallar hverfa aftur til ársins 1995 (það er tveimur árum áður en prumpulagið kom út en samt býr ennþá skrítinn kall í Vesturbænum) og… æi, það skiptir engu máli því hinn kallinn er alltaf að rembast við að skrifa hérna þrælhnyttnar og gáskafullar lýsingar á þáttunum en svo kom í ljós að þið eruð bara ekkert að lesa þær. ;(...more1h 7minPlay
May 11, 202647: Kosið í borginniTveir kallar detta í að tala um kosningabaráttuna í þætti sem átti að koma út eftir kosningar en ákveða á síðustu stundu að breyta til og flýta útgáfu, segja frá tengslum við samsærisnöttara og Sjálfstæðisflokkinn, hafa engan tíma fyrir hlustendur og finna á endanum gleðina í heimi hörmunga.E.S. Vegna framkvæmda í stúdíóinu er ekkert vidjó með þessum þætti og því engin mynd af tveimur köllum....more1h 31minPlay
May 04, 202646: SkammarþríhyrningurinnTveir kallar fara í leikhús, hringja í kerlingu og læra ekki nafnið á neinum sem þeir hitta. Þeir bjóða í matarboð en muna ekki alveg hvernig bróðir þeirra lítur út....more1h 21minPlay
April 20, 202645: Þetta verður allt í lagiSkilaboð berast frá Hollandi og trufla tvo kalla við að rifja upp menntaskólaárin þegar annar þeirra var fótboltasjomli og hinn dauðarokkari. Þeir snúa bökum saman og reyna að róa fíl í postulínsbúð, fá hataða hópa til að hata minna og svara að lokum spurningu áður en hún berst....more1h 21minPlay
April 06, 202644: Ótrúlega óheppnir karlarNokkrir alveg ótrúlega óheppnir karlar fara saman í ferðalag, halda þriðja í páskum heilagan, gefa gjafir, fara í golf og hafa gaman en brjóta engin lög (svo sannað sé). Síðan fá þeir ofnæmi fyrir heiminum, stíga til hliðar og hefja störf við umönnun....more1h 22minPlay
March 23, 202643: Núna má alltTveir kallar eiga við ýmis heilsufarsvandamál að etja svo þeir fara í rannsóknir og tala um rannsóknir og láta stinga sig til blóðs. Í sjúkrarúmunum horfa þeir á heimildarmyndina Inside the manosphere og ræða hana. Sverrir Bergmann kemur ekki í heimsókn á sjúkrahúsið. Þeir hrósa hver öðrum enn einu sinni (er ekki komið nóg af þessari vitleysu?), drulla á sig og sýna af sér hvatvísi í hvívetna en hverjum er ekki drullusama – kallar mega allt....more1h 35minPlay
March 09, 202642: Margar pælingarTveir kallar ropa án þess að segja afsakið, eru eitthvað pirraðir og reka hlaðvörp í umvörpum. Tveir kallar kalla kallakalla kallakalla en vita ekki alveg hvað þeir eiga að kalla kallakallapælingar dagsins svo þeir ákveða að njóta lista, lesa skáldskap og hringja í gamla vini sem þeir gleymdu....more1h 14minPlay
February 23, 202641: Bein pælingTveir kallar taka hlaðvarp í beinni útsendingu, hlustendum dagsins rignir inn í símtölum og báðir fara á trúnó. Ekkert eitthvað. Ging gang gúllí gúllí....more1h 27minPlay
FAQs about Tveir kallar:How many episodes does Tveir kallar have?The podcast currently has 51 episodes available.