
Sign up to save your podcasts
Or


Ykkar albestu bósarar voru hressir og kátir í dag. Við fórum yfir hlaupabrettispælingar, 0% vs 1%, ræddum Valencia, svöruðum spurningum frá okkar albestu hlustendum og laumuðumst til að henda í nokkra brandara!
Það var margt sem við félagar ræddum í Bose stúdíóinu að þessu sinni. Fjallahlaup í Hong Kong, brjálað veður í San Sebastian og svo fengum við maraþonráð frá fellow Bósara, Arnari Péturssyni sem ætti heldur betur að nýtast Valencia sveitinni sem heldur brátt af landi brott!
Fórum yfir Valencia blokkina, gerðum upp powerade hlaupið og jöppuðum um hlaup á íslensku!
Það var maraþonþema í Bose stúdíóinu í dag, töluðum um Valencia blokkina, NY maraþonið og veltum því fyrir okkur hvort við værum farin að hafa það of gott. Umræðunni varðandi dvínandi skráningu í hlaup verður svarað í þættinum ásamt ótrúlega mörgu öðru!
Það er endalaust hægt að tala um hlaup. Ný æfingavika býður upp á nýjar áskoranir, nýjar hugleiðingar, nýjar vörður til þess að láta sig hlakka til aftur og aftur og aftur!
Bose stúdíóið var stútfullt af meðlimum Út að hlaupa að þessu sinni. Kóresk skýrsla, bakgarðurinn gerður upp, hvað þarftu að hlaupa mikið til þess að kalla þig hlaupara?
Þórdís Jóns og Tommi Jac mættu í Bose stúdíóið og ræddu komandi landsliðskeppni í bakgarðshlaupum!
Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!
Köben half gert upp frá okkar manni, Tobbi með Slóvenska skýrslu og bakgarðurinn búinn að eignast nýjan bad boy!
Uppgjörið á íslandi, Kaupmannahafnarmaraþonið, bakgarðsupphitun og spurt og svarað frá hlustendum!