Í þættinum eru skoðuð ýmis nýleg orð á borð við vafraköku og kulnun. Orðið kulnun er notað um viðvarandi andlega og líkamlega þreytu og doða, einkum í tengslum við vinnu - það að fólk fer að finna til starfsleiða eða -kvíða vegna viðvarandi álags, sem einnig hefur verið kallað útkulnun og þrekþurrð. Orðið er myndlíking þar sem þreki eða krafti er líkt við hita, og einkennum leiða og kvíða líkt við kulda.