Hún var mjög ung þegar hún féll fyrir honum og síðar átti hún eftir að hitta hann aftur í hans eigin húsi, Davíðshúsi við Bjarkastíg á Akureyri. Og þá varð hún ástfangin af skáldinu sínu. Valgerður H. Bjarnadóttir hefur sl. sumur haldið utan um starfsemi í Davíðshúsi og tekið á móti ótal mörgum gestum og staðið fyrir margvíslegum viðburðum sem tengjast skáldinu og líklega má segja að hún sé eina konan sem titla megi sem húsfreyju í húsi skáldsins. Umsjón: Margrét Blöndal.