Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

By Vestmannaeyjar - mannlíf og sagaSociety & Culture
Download on the App Store

Vestmannaeyjar - mannlíf og saga episodes

  • Opinn framboðsfundur 2022

    Að þessu sinni er þátturinn með öðruvísi sniði.

    Því nú verður spiluð upptaka af opnum framboðsfundi sem haldin var í gærkvöldi 11. maí.

    Takk fyrir að hlusta

    1 hr 51 min
  • Merkúr - Blind

    Í fimmtugasta og fimmta þætti er rætt við peyjana í hljómsveitinni Merkúr. Peyjarnir segja söguna um stofnun hljómsveitarinnar, hvernig þeir koma sér á framfæri í tónlistinni, hvað er framundan hjá Merkúr og margt margt meira skemmtilegt.

    Í lok þáttarins fáum við að heyra nýja útgáfu af laginu Blind sem peyjarnir í Merkúr sömdu og spila.

    1 hr 23 min
  • Guðbjörg Rún Gyðudóttir Vestmann - Slys í Elliðaey

    Í fimmtugasta og fjórða þætti er rætt við Guðbjörgu Rún Gyðudóttur Vestmann. Gugga Rún eins og hún er kölluð ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, hvernig það kom til að hún flutti til Vestmannaeyja og margt, margt fleira.

    Í seinni hluta þáttarins er lesin upp stutt saga úr fórum Árna Árnasonar símritara, sem nefnist Slys í Elliðaey saga af séra Tómasi Sigurðssyni.

    Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.

    Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja

    Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

    1 hr 20 min
  • Jóna Heiða Sigurlásdóttir - Elliheimili Vestmannaeyja 1950

    Í fimmtugasta og þriðja þætti er rætt við Jónu Heiðu Sigurlásdóttur um lífshlaup hennar. Jóna Heiða ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, listina og margt, margt fleira.

    Í seinni hluta þáttarins er fræðst um fyrsta Elliheimilið í Vestmannaeyjum sem var staðsett í húsinu Skálholti og aðeins farið yfir hvaða tilgangi húsið þjónaði.

    Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.

    Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

    1 hr 17 min
  • Hrefna Erlingsdóttir - Gæfusmiðurinn og lífið

    Í fimmtugasta og öðrum þætti er rætt við Hrefnu Erlingsdóttur um lífshlaup hennar, störf og veikindi. Hrefna ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, heilablóðfallið, flutninginn á Selfoss, sjálfboðaliðastarfið og margt, margt fleira.

    Í seinni hluta þáttarins er lesin viska sem Ásta Engilbertsdóttir skrifaði árið 1939 í Blik.

    Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.

    Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

    2 hr 6 min
  • Ragnar Sigurjónsson - Grafskipið Vestmannaey

    Í fimmtugasta og fyrsta þætti er rætt við Ragnar Sigurjónsson um lífshlaup hans og störf. Raggi eins og hann er oftast kallaður ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, verslunarrekstur, lífið i Viðey, fuglaáhugann og margt, margt fleira.

    Í seinni hluta þáttarins er lesin samantekt um Grafskipið Vesmannaey.

    Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is, einnig frá Kára Bjarnasyni á Bókasafninu og Sveini Valgeirssyni fyrrum starfsmanni Vestmannaeyjahafnar.

    Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

    1 hr 1 min
  • Molda - Herhlaup Tyrkjans

    Í fimmtugasta þætti í hlaðvarpinu er rætt við peyjana í Molda og forvitnast um hljómsveitarlífið og hvað er framundan hjá bandinu og margt annað.

    Peyjarnir sem skipa hljómsveitina Molda eru þeir Albert Snær Tórshamar, Helgi Rasmussen Tórshamar, Þórir Rúnar Geirsson kallaður Dúni og Birkir Ingason.

    Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra nýja lagið þeirra peyjana í Molda sem heitir Herhlaup Tyrkjans.

    Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

    59 min

About Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþáttur þar sem litið er yfir líf og störf fólks sem tengist Vestmannaeyjum á einn eða annan þátt. Einnig verða lesin upp brot úr sögu Vestmannaeyja í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja.