Video rekkinn

Video rekkinn

By Ragnar Aðalsteinn og Hildur EvlalíaTV & FilmArtsPerforming ArtsFilm Reviews
Download on the App Store

Video rekkinn episodes

  • #131 Samstarfsþáttur með Bíófíklum, Wild Horse Nine (2026) og Wicker (2026)

    Smá tæknilegri örðuleikar urðu til þess að þátturinn kom aðeins seinna út en áætlað var. 


    Þáttur vikunnar er sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum. Við heimsóttum stúdíóið þeirra Atla, Tomma og Kjartans og fórum yfir tvær myndir sem voru frumsýndar í síðustu viku: annars vegar Wicker, ævintýramynd með kynferðislegum undirtóni, og hins vegar Wild Horse Nine, sem er virkilega vönduð tímabilsmynd.

    2 hr 19 min
  • #129 Kynjaskipt salerni, Fjord(2026) og Clayface (2026)

    Video Rekka-tvíeykið fór aftur tvisvar í bíó þessa vikuna, annars vegar á Fjord í Bíó Paradís og hins vegar á Clayface í Smárabíói.

    Það er varla hægt að segja að myndirnar tvær eigi mikið sameiginlegt, annað en að báðar hafa leikstjóra, leikara og handrit. Meira um það í nýjasta þætti Video Rekkans.

    52 min
  • #127 Óþolandi fólk í bíó, viðtal við Rósu Magnúsdóttir, Heart of the Beast (2026) The Brink of War (2026)

    Í þætti dagsins tökum við fyrir viðfangsefni sem er mörgum Íslendingum í fersku minni, þegar Gorbatsjov og Reagan hittust í Höfða árið 1986. Önnur myndin sem við fjöllum um, The Brink of War, fjallar einmitt um hvað gerðist á bak við luktar dyr í Höfða í október 1986.

    Til að varpa enn frekar ljósi á kalda stríðið og mikilvægi fundarins fengum við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, í viðtal, bæði til að ræða myndina og kalda stríðið almennt.

    Í lok þáttar fjöllum við einnig um nýjustu mynd Brads Pitt, Heart of the Beast, hugljúfa sögu um mann og hundinn hans sem lenda í ýmiss konar hrakförum.



    1 hr
  • #126 Onslaught (2026), Coyote vs ACME (2026) og Digger (2026)

    Í þætti dagsins er eiginlega bara bíó. Við fjöllum um B+ myndina Onslaught, 80´s splatter thriller (ný mynd samt 😂 )sem engin aðdáandi slíkra mynda ætti að láta framhjá sér fara.


    Við fjöllum um Coyote vs ACME, eina skemmtilegustu fjölskyldumynd ársins. 

    Síðast ekki síst fjöllum við um Digger, mynd sem virðist ætla að tvístra fólki í tvær fylkingar, meistarastykki eða hörmung! :) ATH það er algjörlega bannað að hlusta á þáttinn eftir mínútu 56 ef þú ert ekki búin að sjá Digger, BANNAÐ 🙈

     

    Við viljum líka nota tækifærið og benda fólki á heimasíðuna okkar sem var að fara í loftið. En þar kennir ýmisa grasa, endilega kíkið á www.videorekkinn.is

    1 hr 21 min
  • #125 Borðaskipulag MH, The Invite (2026) og Primetime (2026)

    Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, en það eru MH-ingarnir Ragnheiður Gréta og Egill Arnarsson.


    Við fáum aðeins að skyggnast inn í MH lífið, fáum að kynnast borða skipulaginu og hvort týpuálagið sé mikið. En mestum tíma verjum við í að fjalla um bíómyndina Primetime. En sökum þess að aðeins þáttastjórnendur höfðu farið á The Invite í vikunni fékk hún aðeins minna rými en hún átti skilið í lok þáttar. 

    1 hr 9 min
  • #123 Viðtal við Höskuld, leikstjóra Hvar er draumurinn og Pressure (2026)

    Það er af nógu að taka í þessum nýjasta þætti Video Rekkans. Við byrjum þáttinn á stuttu viðtali við Höskuld Þór Jónsson, leikstjóra Hvar er draumurinn, en við fjölluðum einmitt um þá mynd í síðasta þætti.

    Við fjöllum einnig stuttlega um heimildarmyndina Þetta er ekkert mál sem nú fagnar 20 ára afmæli og er af því tilefni aftur komin í bíó.

    En mestum tíma verjum við í umfjöllun okkar um hina stórkostlegu bíómynd Pressure, eða Loftþrýstingur á íslensku, æsispennandi mynd um veðurfræðing sem bjargar mannslífum.

    54 min
  • #122 Aftur næstum bara bíó og Tony (2026) og Hvar er draumurinn? (2026)

    Þetta er orðið að nær vikulegum viðburði hjá okkur að skella sér tvisvar í bíó, og að þessu sinni tókum við fyrir Tony, sem fjallar um eitt sumar í lífi lífskúnstnersins Anthony Bourdain.

    Svo var ekki verra að hin myndin sem við sáum var ný, íslensk söngvamynd með lögum Sálarinnar hans Jóns míns, Hvar er draumurinn?

    En meira um þetta allt saman í nýjasta þætti Video Rekkans.

    52 min

About Video rekkinn

From the publisher's feed

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.

Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.