VÍDJÓ

VÍDJÓ

By Hugleikur Dagsson og Sandra BarilliTV & FilmTV ReviewsAfter ShowsFilm History
Download on the App Store

VÍDJÓ episodes

  • 033 Harðlífi (Die Hard)

    John McClane heimsækir eiginkonu sína í aðdraganda jólanna en hjónabandið þeirra hefur gengið brösulega. Hann er starfandi lögreglumaður í New York borg en um leið og hann kemur óvænt í jólaboðið sem haldið er í fyrirtækinu hennar þá mæta þangað þrjótar sem ætla sér að ræna bankahvelfingu byggingarinnar. John þarf að taka á honum stóra sínum til að vernda eiginkonu sína og samstarfsfólk hennar.

    1 hr 18 min
  • 032 Blúbbs (Splash)

    Tom Hanks leikur ungan mann sem sér um vöruflutninga og þykir lítið til lífsins og ástarinnar koma. Hann kynnist þá konu sem kemur úr óvæntri átt og segir honum fátt um uppruna sinn. Með þeim takast ástir og lífið leikur við þau þangað til hann kemst að raunverulegu eðli konunnar.

    58 min
  • 031 Eggert (Blade)

    Ofurhetjan Blade er fæddur sem afkvæmi manns en með eiginleika vampíru. Hann nýtir ofurkraftana sína til að berjast gegn þessari vá sem herjar á íbúa New York borgar. Hann reynir eins og hann best getur að stöðva upprisu illmenna sem ætla sér að beita bellibrögðum til að öðlast guðlega krafta.

    1 hr 10 min
  • 030 Geimskutlan (Barbarella)

    Barbarellu er falið það verkefni að hafa upp á illmenninu Duran Duran. Hún lendir í ótrúlegum ævintýrum á ferðalagi sínu um geiminn og passar að vera alltaf viðeigandi í klæðaburði.

    1 hr 20 min
  • 029 Heilinn hans Jóns míns (Being John Malkovich)

    Mjög hæfur brúðuleikari sem hefur því miður ekki náð langt í list sinni, finnur fyrir einskæra tilviljun göng á vinnustaðnum sínum sem leiða hann í ævintýralega upplifun á lífi leikarans John Malkovich. Hann ákveður þá ásamt samstarfskonu sinni að selja aðgang að göngunum en um leið og hr. Malkovich sjálfur kemst að þessum leyndardóm eru góð ráð dýr.

    1 hr 14 min
  • 027 Grímuskylda (Halloween)

    Aukaþáttur í tilefni af Hrekkjavöku, Hulla og Söndru félagið horfir á hryllingsmynd þar sem ungur drengur myrðir systur sína og er vistaður á geðsjúkrahúsi í framhaldi. Hann sleppur út þegar hann er kominn til vits og ára og ræðst á ungar barnapíur í gamla hverfinu sínu.

    1 hr 13 min
  • 026 Dýrin í Haglaskógi (Bambi)

    Líf dýranna í skóginum er ekki alltaf dans á rósum, sérstaklega þegar óboðni gesturinn mætir þangað. Við fylgjumst með Bamba og vinum hans stíga sín fyrstu skref og átta sig á umhverfi sínu með tilheyrandi gleði og áföllum .

    58 min
  • 025 Heimskveldið (Idiocracy)

    Hvað ætli gerist í heimi þar sem illa gefnu fólki fjölgar svo að þau útrýma því gáfaða? Meðaljón Ameríku vaknar úr dái í framtíðarríki þar sem hann, fullkomlega áreynslulaust, er orðinn best gefni þjóðfélagsþegninn. Hann kynnir betri aðferðir við ræktun korns og er gerður að forseta Bandaríkjanna stuttu eftir það.

    1 hr 40 min
  • 024 Mektarmenn (Goodfellas)

    Glæpagengi í Brooklyn elur upp meðlimi frá unga aldri. Henry litli sinnir hinum ýmsu störfum fyrir glæpóna hverfisins og uppsker ríkulega. Þegar hann er orðinn háttsettur ákveður hann að færa út kvíarnar en kemst í hann krappann þegar hann verður of sólginn í innflutningsvörur sínar.

    2 hr 8 min

About VÍDJÓ

From the publisher's feed

Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli horfa á mikilvægustu myndir allra tíma.