Víkings hlaðvarpið

Víkings hlaðvarpið

By Víkingur MediaSports
Download on the App Store

Víkings hlaðvarpið episodes

  • Hverfisfélagið eins og kirkja

    Í síðasta þætti Meðal fólks á Rás 1 var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.

    Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áður fyrr.

    Fyrir hvern fótboltaleik vinna tugir sjálfboðaliða tímum saman til að undirbúa allt sem þarf að undirbúa. Í síðasta þætti Meðal fólks var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.

    Þátturinn var fyrst fluttur á Rás 1 og er því endurfluttur hér á hlaðvarpi Víkinga. Þökkum RÚV fyrir heimsóknina ❤️🖤

    52 min
  • Einar Guðnason

    Bjarki og Hörður settust niður með Einari Guðna og ræddu fótbolta, Black Sabbath, Svíþjóð og allt þar á milli.

    Einar Guðnason er tók nýlega við kvennaliði Víkings og þó flestir Víkingar viti hver hann er þá vildum við aðeins kynnast honum betur. Hvað er Einar búinn að vera að gera síðustu ár? Hvaðan kemur hann og hvernig fótbolta vill hann spila?

    Þú einfaldlega verður að hlusta. ❤️🖤

    1 hr 17 min
  • Tómas Þór og Halldór Smári Sigurðsson

    Eftir áratugi í treyjunnni, 464 leiki, 2 Íslandsmeistaratitla, 4 bikara, Evrópuævintýri og ótrúlegt magn af Hamingju segjum við takk við Halldór Smára Sigurðsson. Herra Víkingur nær alls ekki utan um allt sem þú hefur gefið félaginu okkar. Takk Halldór Smári ❤️🖤

    47 min
  • Tómas Þór og Arnar Gunnlaugsson

    Tómas og Arnar fara yfir 6 ár af Hamingju í Hamingjunni. Tómas spyr Arnar spjörunum úr og sýnir honum myndir frá mikilvægum augnablikum á ferli Arnars sem þjálfara Víkings.

    Takk fyrir allt Arnar og gangi þér vel á nýjum vettvangi. Áfram Víkingur og áfram Ísland. 🖤❤️

    Lag í byrjun er eftir Futuregrapher / Árna Grétar og heitir 303 Melody flow. Mælum með að kíkja á þann frábæra listamann. ❤️

    51 min
  • Fyrirmyndirnar okkar: Sveindís Jane Jónsdóttir

    Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 6

    Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið.

    Hver er Sveindís Jane? Hvernig náði hún markmiðum sínum? Hvert er uppáhalds augnablikið á ferlinum hingað til? Í hvernig takkaskóm spilar Sveindís og margt fleira!

    Það var sannur heiður að fá að setjast niður með Sveindísi og ræða um það sem við elskum jú öll, fótbolta.

    1 hr 28 min
  • Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson

    Loksins náðum við í skottið á Arnari Gunnlaugssyni þjálfara meistaraflokks karla og stilltum honum upp fyrir framan hljóðnemann í Víkings stúdíóinu.

    Það er mjög viðeigandi að Hörður og Bjarki hafi grillað Arnar í 90 mínútur og fengu aðeins að kynnast manneskjunni Arnari Gunnlaugssyni betur. Aðeins öðruvísi viðtal en Arnar er kannski vanur, en dómur féll strax eftir viðtalið : "Strákar, þetta var helvíti gaman". Betri meðmæli fást ekki.

    1 hr 31 min
  • Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson

    Serían "Fólkið okkar" heldur áfram. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa.

    Hörður og Bjarki fengu Þórarinn Einar Engilbertsson (Tóta) í heimsókn og ræddu hvað þjálfarastarfið felur í sér og hver sýn Tóta er á þjálfun í yngri flokkunum.

    59 min
  • Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel

    Stelpurnar okkar - Season 2 - Þáttur 1

    Bjarki og Hörður fengu tvo leikmenn meistaraflokks í heimsókn.

    Gígja Valgerður Harðardóttir var byrjuð að spila fótbolta í meistaraflokki áður en Rakel Sigurðardóttir fæddist. Farið var yfir ferilinn, hvernig er að vera Víkingur, hvernig tilfinningin var fyrir Rakel að vera í stúkunni á sjálfum Bikarúrslitaleiknum þar sem hún hélt með Breiðablik og margt margt fleira.

    Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Gígja og Rakel. Áfram Víkingur ❤️🖤

    55 min
  • Uppgjörið - John og Kristó

    Hörður og Bjarki náðu tali af John Andrews og Kristófer Sigurgeirssyni og fóru yfir stöðuna hjá Meistaraflokki kvenna.

    Í þættinum er meðal annars að finna :

    • Hvernig fór sumarið 2023? Var John sáttur með árangurinn?
    • Af hverju við Víkingar eigum ekki leikmann í A landsliði kvenna
    • Yngri flokka þjálfun
    • Gerðum smá grín að Kristó
    • Mikil enska töluð af því að John krefst þess að öll viðtöl séu á ensku
    • Hvaða leikmenn eru að koma upp
    • En í stuttu máli þá var mikið hlegið, hefðum getað verið í 8 klukkutíma en látum rétt rúmlega klukkutíma duga.

      1 hr 20 min
    • Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson

      Serían "Fólkið okkar" er komin af stað. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa.

      Það var því heldur betur við hæfi að hitta á Viktor Bjarka sem tók nýlega við starfi yfirþjálfara yngri flokka Víkings. Viktor er Víkingur í húð og hár en kom víða við á ferlinum sem leikmaður og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun.


      Hörður og Bjarki náðu tali af honum í dag og fóru yfir ferilinn, þjálfarastarfið og brekkuna og malarvöllinn í Hæðargarði. Velkominn heim Viktor!

      1 hr 5 min

    About Víkings hlaðvarpið

    From the publisher's feed

    Allt milli himins og jarðar sem tengist Víking og/eða fótbolta.

    More shows like Víkings hlaðvarpið

    Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

    Dr. Football Podcast

    141 Listeners

    Handkastið by Handkastið

    Handkastið

    11 Listeners

    433.is by 433.is

    433.is

    5 Listeners

    Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

    Steve Dagskrá

    22 Listeners

    FM957 by FM957

    FM957

    26 Listeners

    Draumaliðið by Jói Skúli

    Draumaliðið

    12 Listeners

    70 Mínútur by Hugi Halldórsson

    70 Mínútur

    18 Listeners

    Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

    Grjótkastið

    7 Listeners

    Þjóðmál by Þjóðmál

    Þjóðmál

    28 Listeners

    Þungavigtin by Tal

    Þungavigtin

    20 Listeners

    Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

    Chess After Dark

    20 Listeners

    Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

    Spursmál

    13 Listeners

    Einn Tveir by Gula Spjaldið

    Einn Tveir

    1 Listeners

    Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

    Seinni níu

    6 Listeners

    Komið gott by Komið gott

    Komið gott

    25 Listeners