
Sign up to save your podcasts
Or


Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins.Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú.Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag.Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB.Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi.Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Víðir Reynisson, Samfylkingu, um tíðindaleysi á þingi, menntamál og Litla spítalann.
Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum.Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu.Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta.Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.
Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag.I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsaAldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækniMár Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræðiSigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að LaugarvatniII. hluti: ASÍGeorg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍArnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍIII. hluti: Vikan á þingiSandra Sigurðardóttir, þingmaður ViðreisnarBergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins
Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum.I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysiArna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndarBjörgin Víkingsson, framkvæmdastjóri BónusFinnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍII. hluti: Landsvirkjun og Hörður ArnarsonAndrés Jónsson, almannatengill og stjórnendaráðgjafiGuðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingurIII. hluti: Rætt um samtal, gervigreind og friðHalla Tómasdóttir, forseti ÍslandsLísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta
Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur.Í öðrum hluta er rætt við Willum Þór Þórsson, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, meðal annars um Heimi Hallgrímsson, Ísrael, forvarnir og landsleik.Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra er gestur þriðja hluta, þar verður meðal annars rætt um boðað náttúru- og innviðagjald, hvalveiðar og nýja stofnun atvinnuveganna.
Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræddu einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja.Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi var í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt var við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor.Að lokum var rætt við Óskar Einarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands, um kjaradeilu við Icelandair og fyrirhugað verkfall.
I. hluti: PISA- Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi- Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri HagaskólaII. hluti: Þingsetning og fjárlög- Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins- Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður FramsóknarflokksinsIII. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands- Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands- Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál
Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað.Fyrsti hluti:- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherraAnnar hluti:- Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark- Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins- Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á SýnÞriðji hluti:- Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi- Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum- Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla
Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu.Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing.Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins.Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR, og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.
From the publisher's feed