Við erum með hugann við vinnustofudvalir í Tengivagninum í dag, það er algengt að myndlistarmenn dvelji í vinnustofum erlendis en líka hér á landi.
Við ræðum við Katrínu Helenu Jónsdóttur, verkefnastjóra gestavinnustofa hjá SÍM, sem og listamennina Gabriel Gold og Lasse Lecklin sem dvelja þar nú um mundir.
Myndlistarkonan Bjargey Ólafsdóttir er stundum kölluð residensíudrottningin, hún hefur ferðast víða um heim og dvalið á ólíkum stöðum við listsköpun. Við hittum hana í ljósmyndagalleríinu RamSkram þar sem hún er með sýningu. Við fáum líka að heyra brot úr nýju hljóðverki hennar þar sem heyra má hrotur sofandi hunds.
Áslaug Torfadóttir flytur auk þess sjónvarpspistil, að þessu sinni um þáttaröðina GLOW, þar sem fjölbragðaglíma kvenna kemur við sögu.
Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson.